Netöryggi fyrir eldri borgara í Reykjanesbæ

Hvaða einföldu og skilvirku netöryggisráð er gott að hafa í huga til að verjast netsvikum?

Á þessum opna fræðslufundi verður farið yfir nokkur mikilvæg atriði í netöryggi:

  • Hvernig má bera kennsl á netsvik?
  • Hvað áttu að gera ef þú lendir í svikum?
  • Hvernig eflum við fjárhagslega heilsu með góðum netöryggisvenjum?
  • Svik sem gerast í gegnum netið líkt og sviksamlegar netverslanir og fleira.
  • Svik sem gerast á staðnum líkt og hraðbankasvik, vasaþjófnaður og ofrukkanir.

Erindi flytur Eva Valdís Jóhönnudóttir, reyndur sérfræðingur á svikavakt Íslandsbanka. Þetta er opinn fræðslufundur sem fer fram í útibúi Íslandsbanka í Reykjanesbæ, miðvikudaginn 25. mars kl. 17-18. Við hvetjum eldri borgara sérstaklega til að mæta.

Viðburður

17:00 - 18:00

Útibú Íslandsbanka í Reykjanesbæ

Þessi viðburður er liðinn