
Netöryggi fyrir eldri borgara á Akureyri
Hvaða einföldu og skilvirku netöryggisráð er gott að hafa í huga til að verjast netsvikum?
Á þessum opna fræðslufundi verður farið yfir nokkur mikilvæg atriði í netöryggi:
- Hvernig má bera kennsl á netsvik?
- Hvað áttu að gera ef þú lendir í svikum?
- Hvernig eflum við fjárhagslega heilsu með góðum netöryggisvenjum?
- Svik sem gerast í gegnum netið líkt og sviksamlegar netverslanir og fleira.
- Svik sem gerast á staðnum líkt og hraðbankasvik, vasaþjófnaður og ofrukkanir.
Erindi flytur Eva Valdís Jóhönnudóttir, reyndur sérfræðingur á svikavakt Íslandsbanka. Þetta er opinn fræðslufundur sem fer fram í Drift á Akureyri, Strandgötu 1, fimmtudaginn 5. mars kl. 12-13. Við hvetjum eldri borgara sérstaklega til að mæta.