Netöryggi fyrir eldri borgara

ATH: Fundurinn er fullbókaður. Vegna mikillar eftirspurnar verður boðið upp á annan fund strax í mars.

---
Hvaða einföldu og skilvirku netöryggisráð er gott að hafa í huga til að verjast netsvikum?

Á þessum opna fræðslufundi verður farið yfir nokkur mikilvæg atriði í netöryggi:

  • Hvernig má bera kennsl á netsvik?
  • Hvað áttu að gera ef þú lendir í svikum?
  • Hvernig eflum við fjárhagslega heilsu með góðum netöryggisvenjum?
  • Svik sem gerast í gegnum netið líkt og sviksamlegar netverslanir og fleira.
  • Svik sem gerast á staðnum líkt og hraðbankasvik, vasaþjófnaður og ofrukkanir.

Erindi flytur Eva Valdís Jóhönnudóttir, reyndur sérfræðingur á svikavakt Íslandsbanka. Þetta er opinn fræðslufundur sem fer fram í útibúi Íslandsbanka í Norðurturni, þriðjudaginn 10. febrúar kl. 17-18. Við hvetjum eldri borgara sérstaklega til að mæta.

Viðburður

17:00 - 18:00

Útibú Íslandsbanka í Norðurturni

Þessi viðburður er liðinn