Netöryggi á afsláttardögum

Afsláttardagar eru vinsæll tími til að gera góð kaup, en þá er líka mikilvægt að vera á varðbergi gagnvart netsvikum. Hvernig þekkjum við sviksamleg tilboð og hvað er gott að hafa í huga þegar verslað er á netinu?

Á þessum opna fræðslufundi verður farið yfir nokkur mikilvæg atriði sem gott er að hafa í huga til að versla örugglega og verjast netsvikum:

  • Hvernig þekkjum við sviksamleg tilboð og netverslanir?
  • Hvað ber að hafa í huga áður en við gefum upp korta- eða bankaupplýsingar?
  • Hvernig getum við greint falskar vefsíður, skilaboð og auglýsingar?
  • Hvað eigum við að gera ef við lendum í netsvikum?

Erindi flytja Einar Óskar og Jónas Breki, sérfræðingar í svikaeftirliti Íslandsbanka.

Fræðslufundurinn er opinn öllum og við hvetjum áhugasama til að mæta og fræðast um hvernig við getum verslað örugglega á netinu.

Viðburður

17:00 - 18:00
Norðurturn 9.hæð

Höfuðstöðvum Íslandsbanka í Norðurturni, 9. hæð