
Látum litlu fjársjóðina dafna
Velkomin á fræðslufund Íslandsbanka þar sem fjallað verður um barnasparnað og slysavarnir barna – hvernig hægt er að byggja upp sparnað fyrir börn og hvaða leiðir geta hjálpað til við að skapa þeim öruggt umhverfi á fyrstu árum lífsins.
Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða, mun fara yfir fyrstu skrefin í sparnaði barna, hvers vegna það skiptir máli að hefja sparnað snemma og hvernig litlar fjárhæðir í dag geta orðið að stórum tækifærum í framtíðinni.
Herdís L. Storgaard, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Miðstöðvar slysavarna barna, fer yfir hvernig tryggja megi öruggt umhverfi barna á heimilum og í bílum.
Fundurinn er opinn öllum og fer fram í Lækjargötuhúsi á Árbæjarsafninu miðvikudaginn 11. mars kl. 10-11 þar sem við munum eiga notalega stund saman. Við hvetjum nýbakaða foreldra sérstaklega til að mæta á fundinn og börn eru að sjálfsögðu meira en velkomin með.