Jólin í Krakkabankanum - Norðurturni

Við fáum góða gesti til okkar í útibú Íslandsbanka í Norðurturni (Hagasmára 3 við Smáralind) þann 2. desember ásamt því að jólasveinar kíkja í heimsókn.

13:00 Georg mætir á svæðið og gefur öllum börnum bækur.
13:30 Birgitta Haukdal les úr Láru og Ljónsa og syngur nokkur jólalög.
14:00 Leikhópurinn Lotta stígur á stokk og sýnir stórskemmtilega söngvasyrpu.

Frítt er inn á viðburðinn og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Athugið að engin bankaþjónusta verður í útibúinu sjálfu en hraðbankaráðgjafar verða viðskiptavinum innan handar.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Krakkabankinn er viðburðaröð Íslandsbanka sem er ætlað að höfða til yngstu kynslóðarinnar og vera blanda af skemmtun og fræðslu.

Viðburður

13:00 - 15:00

Útibúið í Norðurturni hjá Smáralind

Þessi viðburður er liðinn