Hvað viltu vita? Borgari og bjór yfir léttu spjalli um markaðinn

Hvað viltu vita um hlutabréf og fyrirtækin í Kauphöllinni? Á þessum opna fræðslufundi fáum við forstjóra skráðra fyrirtækja í Kauphöllinni í létt spjall til að segja okkur frá tækifærum og áskorunum sem þau standa fyrir með sín félög.

Kristín Hrönn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Fyrirtækja og fjárfesta hjá Íslandsbanka opnar fundinn og Edda Hermannsdóttir, forstöðumaður Markaðs- og samskiptasviðs og Páll Orri Pálsson, verðbréfamiðlari taka Ástu Sigríði Fjeldsted, forstjóra Festi, Jón Guðna Ómarsson, bankastjóra Íslandsbanka, Maríu Björk Einarsdóttur, forstjóra Símans og Ásgeir Helga Reykfjörð Gylfason, forstjóra Skeljar í létt spjall og umræður.

Boðið verður upp á góðar veitingar á meðan fundurinn stendur yfir. Húsið opnar kl. 17:30 og fundurinn hefst kl. 18.

Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Íslandsbanka í Norðurturni.

Viðburður

17:30 - 19:00

Höfuðstöðvar Íslandsbanka í Norðurturni

Þessi viðburður er liðinn