Hlutabréfamarkaðurinn í hnotskurn
Opinn fræðslufundur um allt það helsta sem tengist hlutabréfamarkaðnum.
Meðal þess sem rætt verður um er:
- Hvernig á ég viðskipti með hlutabréf?
- Hvernig lítur íslenski markaðurinn út? En erlendir markaðir?
- Hvaða atburðir gætu haft áhrif á markaðinn 2024?
- Hvað segir heildarvísitalan okkur og hvernig hefur hún þróast?
- Hvernig fylgist ég með markaðnum?
Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Íslandsbanka í Norðurturni
Erindi flytja Hildur Eiríksdóttir, forstöðumaður eignastýringar Íslandsbanka, og Páll Orri Pálsson verðbréfamiðlari hjá Íslandsbanka.