Fjármál við starfslok - Siglufjörður

Íslandsbanki býður á opinn fræðslufund í Bláa húsinu á Siglufirði.

Meðal þess sem rætt verður um er:

  • Greiðslur og skerðingar Tryggingastofnunar
  • Hvenær og hvernig er best að sækja lífeyri og séreignarsparnað?
  • Skattamál
  • Skipting lífeyris með maka

Erindi flytur Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greiningar og fræðslu Íslandsbanka.

Viðburður

17:00-18:00

Bláa húsið á Siglufirði

Þessi viðburður er liðinn

Hvað segja viðskiptavinir um starfslokafundi Íslandsbanka?

Vil þakka fyrirlesara frábæra og skýra framsetningu. Það er frábært þegar það er talað við okkur venjulega fólkið á mannamáli. Takk kærlega fyrir mig.

Ég var mjög ánægður með framsetninguna og allar upplýsingar sem komu fram. Eins góðar leiðbeiningar um hvert ætti að leita ef maður þarf meiri upplýsingar. Takk fyrir mig.

Hann var einstaklega skýr og jákvæður í allri framsetningu og talaði mannamál.

Góð kynning - framreidd á fumlausan og notalegan hátt .

Takk kærlega fyrir góðar útskýringar og greinagóð svör. Ég mun líka skoða betur leiðbeiningarnar á heimasíðu islandsbanki.is/60.

Þetta var vel útfært. Fyrirlesari skýrmæltur og vel heima í því sem hann fjallaði um. Virkilega góður og innihaldsríkur fundur. Mæli hiklaust með þessum fundi við aðra.

Mjög faglegt og svaraði mörgum spurningum. Fyrirlesarinn flottur og skýrmæltur