Fjármál við starfslok - Frestað

Íslandsbanki býður á opinn morgunfund um fjármál við starfslok í höfuðstöðvum bankans í Norðurturni við Smáralind (9. hæð).

Meðal þess sem rætt verður um er:

  • Skerðingar og greiðslur Tryggingastofnunar
  • Hvenær og hvernig er best að taka út lífeyri og séreign?
  • Hvað þarf að hafa í huga varðandi skatta?
  • Hver eru algengustu mistökin sem gerð eru við starfslok?

Erindi flytur Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greiningar og fræðslu Íslandsbanka 

Frítt er á fundinn, en áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig.

Viðburður

08:15-09:00

Norðurturn við Smáralind - 9. hæð

Þessi viðburður er liðinn