![](https://cdn.islandsbanki.is/image/upload/dpr_1.0,f_auto/if_fc_gte_1/c_fill,e_blur:500,g_faces,h_21,w_50/if_else/c_fill,e_blur:500,h_21,w_50/if_end/v1/images/snorri_bland_tonleikar.jpg)
Bland í poka! - Tónleikar með Snorra Helgasyni
Snorri Helgason mætir í Krakkabankann og tekur lög af nýju barnaplötunni sinni sem ber það skemmtilega nafn Bland í poka.
Tónleikarnir henta krökkum á öllum aldri.
Tónleikarnir eru haldnir í útibúi bankans í Norðurturni (Hagasmára 3 í Kópavogi). Frítt er inn á viðburðinn og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Athugið að engin bankaþjónusta verður í útibúinu sjálfu.
Krakkabankinn er viðburðaröð Íslandsbanka sem er ætlað að höfða til yngstu kynslóðarinnar og vera blanda af skemmtun og fræðslu.
Hlökkum til að sjá ykkur!