Óverðtryggður lífeyris­reikningur

Hentar þeim sem vilja stöðuga ávöxtun á sínum séreignarsparnaði, t.d. þeim sem eru komnir á síðari hluta starfsævinnar eða farnir að nálgast eftirlaunaaldur.

Helstu eiginleikar

  • Stöðugleiki í ávöxtun

  • Bestu innlánakjör á hverjum tíma

  • Skattalegt hagræði

Tegund
Stofnár
2009
Grunnmynt
ISK
Eignasamsetning
  • 100% Innlán í bönkum og sparisjóðum

Síðast breytt:

Markmið

Markmið þessarar leiðar er að lágmarka sveiflur og áhættu og skila þannig stöðugri ávöxtun á séreignarsparnaði. Ávöxtun er yfir höfuð lægri en til dæmis í stýringu A, B, C og D, en á sama tíma er áhættan minni.

Í hverju fjárfestir sjóðurinn?

Fjárfest er í óverðtryggðum lífeyrisreikningi hjá Íslandsbanka. Lífeyrisreikningar bera vexti samkvæmt vaxtatöflu Íslandsbanka eins og hún er hverju sinni. Trygging innstæðna á innlánsreikningum fer eftir lögum nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi.

Skjöl og gögn


Ávöxtun og eignasamsetning
PDF
Fjárfestingarstefna
PDF

Reglur um Framtíðarauð
PDF
Verðskrá verðbréfaþjónustu
PDF

Fyrir­varar


Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á lítilli eða engri ávöxtun eða að höfuðstóll tapist. Ávöxtun í fortíð er hvorki vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts þegar við á. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni.

Framtíðarauður er séreignarsparnaður samkvæmt lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Íslandsbanki er vörsluaðili Framtíðarauðs. Viðskiptavinir eru hvattir til að kynna sér vel reglur Framtíðarauðs og fjárfestingarstefnu mismunandi fjárfestingarleiða.

Upplýsingar á síðunni eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem tilboð eða ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Íslandsbanki hf. ber enga ábyrgð á fjárfestingarákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinga á síðunni. Upplýsingarnar byggja á heimildum sem eru taldar áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast nákvæmni né réttmæti þeirra. Áskilinn er réttur til leiðréttinga.

Gengisþróun og ávöxtun

Tekið er tillit til umsýslugjalds við daglegan útreikning á gengi fjárfestingarleiða. Ávöxtun umfram 12 mánuði er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Ávöxtun styttri tímabila er ekki umreiknuð á ársgrundvöll heldur er um gengisbreytingu að ræða. Uppreikningur ávöxtunar miðast við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt hverrar fjárfestingarleiðar.