Starfsnám

Íslandsbanki býður upp öflugt og spennandi starfsnám fyrir háskólanema. Í því fá nemendur tækifæri til kynnast starfsemi bankans í skemmtilegu og lifandi vinnuumhverfi.

Um starfsnámið


Íslandsbanki tekur á móti metnaðarfullum háskólanemum í starfsnám. Starfsnemar fá tækifæri til að kynnast fjölbreyttri starfsemi bankans og öðlast dýrmæta reynslu í að takast á við raunhæf verkefni.

Í starfsnámi Íslandsbanka fá starfsnemar úthlutað leiðbeinanda innan þess sviðs sem starfsneminn starfar til að styðja við faglega þróun og og farsæla upplifun.

Starfsnemar fá nauðsynlegan búnað og fræðslu til að komast fljótt og örugglega af stað í starfsnáminu sem og aðgang að ýmiskonar hlunnindum eins og fríu fæði, nudd, deilibílar, hopp hjól, fatahreinsun og sérsniðnum Fríðu afsláttum.

Hagnýtar upplýsingar

Starfsnám er ávallt skipulagt í samvinnu við nemendur og viðkomandi skóla. Háskólar og deildir innan þeirra hafa mismunandi reglur um starfsnám.

Grunnnemar þurfa að hafa lokið 120 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25) og meistaranemar 60 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25). 

Spurt og svarað


Hvað segja fyrrum starfsnemar?


Starfsnámið hjá Íslandsbanka veitti mér mikilvæga reynslu og innsýn í fjármálageirann. Verkefnin voru krefjandi en skemmtileg og stuðningurinn frá reynslumiklum leiðbeinendum hjálpaði mér mikið við að takast á við þau. Starfsnámið stækkaði tengslanetið og opnaði dyr að frekari starfstækifærum innan bankans.
Andri Már Strange, sérfræðingur hjá Viðskiptaeftirlit – starfsnemi hjá Viðskiptabanka 2023.

Ég var starfsnemi í mannauðsteyminu sumarið 2025 og reyndist það mér verulega lærdómsríkt og skemmtilegt. Ég fékk góða innsýn í fjölbreytt verkefni innan mannauðstjórnunar sem gaf mér færi á að styrkja og þróa hæfni mína enn frekar. Starfsnámið var mér dýrmætt þar sem ég öðlaðist reynslu og stækkaði tengslanetið sem mun nýtast mér í framtíðinni. 
Alexandra Einarsdóttir, starfsnemi í mannauðsdeild.

Starfsnámið mitt hjá Íslandsbanka var frábær inngangur að atvinnulífinu. Ég fékk að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum, kynnast frábæru fólki og öðlast dýrmæta innsýn í starfsemi bankans. Ég fékk svo tækifæri til að halda áfram að vinna hjá bankanum og hefur það verið ómetanlegur stökkpallur fyrir mig.
María Sif Þorvaldsdóttir, sérfræðingur hjá Markaðs-og samskiptasviði – starfsnemi hjá Markaðs-og samskiptasviði 2023.