Hjálparhönd

Íslandsbanki býður starfsfólki sínu að leggja sitt af mörkum til góðgerðamála. Starfsfólk bankans getur varið einum vinnudegi á ári í þágu góðs málefnis og velja sjálfir það málefni sem þeir vilja veita liðsinni.

Verkefnin


Um er að ræða sjálfboðaliðastörf fyrir góðgerðafélög, mannúðarsamtök, björgunarsveitir og ýmis önnur góð málefni.

Íslandsbanki hefur lagt ríka áherslu á að leggja samfélaginu lið, ekki aðeins með styrkjum heldur einnig virkri þátttöku starfsfólks bankans í verkefnum sem horfa til heilla í samfélaginu.

Með því að bjóða starfsfólki sínu einn dag á ári til að sinna góðgerðamálum vill bankinn rétta samfélagsverkefnum um land allt hjálparhönd.

Fyrsta verkefnið

Fyrsta verkefnið var fyrir Skógræktarfélag Reykjavíkur í Vífilsstaðahlíð í Heiðmörk. Þar tíndi starfsfólk rusl og gróðursetti tré. 

Sendu okkur hugmynd á hjalparhond@islandsbanki.is