Upphleðsla innlendra greiðslubunka
Greiðslubunkar gera þér kleift að senda margar innlendar greiðslur í einu til greiðslu inn í Netbanka. Þetta er sérstaklega hentugt til að greiða laun, birgja eða annan endurtekinn kostnað á skilvirkan og öruggan hátt. Nánar tiltekið er greiðslubunki:
- Safn greiðslna sem eru unnar saman sem ein heild
- Allar greiðslur þurfa að vera innlendar (ISK greiðslur)
- Hver bunki má aðeins innihalda eina tegund greiðslu
- Notandi staðfestir allan bunkann með einni auðkenningu (SCA)

Upphleðsla greiðslubunka
Þetta er leiðin til að skrá bunka í gegnum netbankann.
- Farðu Greiðslubunkar > Innlendir
- Veldu Hlaða upp skrá
- Eftir upphleðslu skrárinnarYfirfarðu greiðslurStilltu grunnupplýsingar, þ.m.t. greiðsludagsetningu

Mikilvægt:
- Kerfið sannreynir skrána sjálfkrafa
- Ekki er hægt að breyta einstökum greiðslum eftir upphleðslu
- Ef þarf, má hætta við og hlaða upp nýrri og leiðréttri skrá
Yfirferð og lagfæring villna
Eftir að bunka hefur verið hlaðið upp:
- Birtast allar greiðslur í lista
- Ef villur eru til staðar eru þær skýrt merktar svo þú sérð hvað þarf að laga
- Á þessu stigi má einnig smella á "Breyta" (hnappur efst til hægri) til að breyta grunnupplýsingum skrár.

Þú getur síðan:
- Haldið áfram aðeins með greiðslur sem ekki eru á villu, eða
- Hætt við bunkann og hlaðið upp leiðréttri skrá
Staðfesta og senda bunka til greiðslu
Þegar allt er tilbúið, staðfestu bunkann með öruggri auðkenningu (SCA). Staðfestingin á við um allan bunkann og þar með talið allar greiðslur í honum

Eftir aðgangsheimildum notanda:
- Má hann senda bunkann til greiðslu sjálfur, eða
- Senda hann til samþykktar (undirritunar) hjá öðrum notanda (ekki í boði enn, fylgir samþykktarferli)

Bunkar með greiðslum á villu
Eftir upphleðslu bunka og villupróf birtist listi yfir allar greiðslur í bunkanum.
Ef ein eða fleiri greiðslur innihalda villur birtist tilkynning efst í textakassa (blár eða rauður).
- Textinn sýnir heildarfjölda innlesinna greiðslna og fjölda greiðslna með villum
- Villulýsing inniheldur línunúmer þar sem villan kom upp
- Notandi sér skýrt hvaða greiðslur/línur innihalda villur og getur því leiðrétt þær
Tilkynningin sýnir einnig tvo valkosti:
- Vinna bunkann eins og hann er – greiðslur með villum verða þá ekki afgreiddar
- Hætta við bunka – leiðrétta þarf skrána og hlaða henni upp aftur
Ef notandi velur að hætta við:
- Hann smellir á hnappinn „Ný upphleðsla“
- Þá opnast innsláttargluggi þar sem hægt er að hlaða upp nýrri skrá
- Kerfið keyrir villupróf á nýju skránni
- Sama nálgun er notuð og við innlestur þekktra viðtakenda
Eftir upphleðslu og villupróf:
- Notandi sér lista greiðslna úr nýjustu upphleðslu
- Allar áður skráðar stillingar (t.d. nafn bunka ofl.) haldast
