Leiðbeiningar um stofnun kröfuskráar í netbankanum
Hér eru leiðbeiningar um hvernig þú lest inn skjal í netbankanum.
Farðu í innheimta, veldu kröfur og kröfuskrár og smelltu á stofna kröfuskrá.
Þá færðu upp þessa síðu:

- Þegar á þessa síðu er komið smellir þú á stofna kröfuskrá þá kemur upp síðan hér fyrir neðan.
- Dálkar F-M eru notaðir til að sundurliða kröfuna. Fyrir hverja upphæð er skráð lýsing (60 stafir) og upphæð (9 stafir). Dálkarnir mynda því pörin F-G, I-H og svo framvegis. Dæmi um lýsingu og upphæð væri: F-G - Árgjald 5.000.
- Ef þú slærð inn kröfunúmer þarf það að vera 6 tölustafir. Ef reiturinn er skilinn eftir auður verður kröfunúmeri úthlutað sjálfkrafa af kerfinu.
- Gættu þess að reitir í Excel-skjalinu séu á textasniði, annars getur Excel fjarlægt núll fremst í kennitölum.
- Þar er hægt að nefna skrána, gott að setja t.d. „Innheimta_AA_ og dagsetningu gjd“.
- Veldu fyrst kröfusniðið sem kröfurnar eiga að tilheyra. Næst getur þú hlaðið upp skránni með því að draga hana inn í reitinn eða velja hana úr tölvunni.
- Smellir síðan á staðfesta.

Þegar búið er að hlaða kröfum þá birtist þessi mynd sem segir kröfuskrá skráð. Stórar skrár geta tekið lengri tíma í vinnslu. Þá birtast skilaboðin skrá í vinnslu og það þarf að endurhlaða síðunni til að sjá uppfærða stöðu.

Þegar kröfuskráin hefur verið stofnuð birtast kröfurnar í kröfuyfirliti þar sem hægt er að fylgjast með stöðu þeirra.
