Skráðu skattkennitölu þína (TIN)
Ef þú hefur skattalega heimilisfesti utan Íslands þarftu að skrá skattkennitölu (e. tax identification number, TIN) hjá okkur. Smelltu hér til að skrá eða leiðrétta númerið.
Skattaleg heimilisfesti ræður því hvar þú greiðir skatt af tekjum þínum. Reglur um hvenær skattaleg heimilisfesti myndast eru mismunandi milli landa, svo ef þú ert í vafa skaltu hafa samband við skattaráðgjafa eða skattyfirvöld í viðkomandi landi.
Athugaðu: TIN er ekki það sama og íslenska kennitalan þín. Það er sérstakt skattnúmer frá landinu þar sem þú ert með skattalega heimilisfesti. Upplýsingar um það eru á vef skattyfirvalda í því landi.