Upphleðsla innlendra greiðslubunka
Greiðslubunkar gera þér kleift að senda margar innlendar greiðslur í einu til greiðslu í Netbanka. Þetta er sérstaklega hentugt til að greiða laun, birgja eða annan endurtekinn kostnað á skilvirkan og öruggan hátt.
Nánar tiltekið er greiðslubunki:
- Safn greiðslna sem eru unnar saman sem ein heild
- Allar greiðslur þurfa að vera innlendar (ISK greiðslur)
- Hver bunki má aðeins innihalda eina tegund greiðslu
- Notandi staðfestir allan bunkann með einni auðkenningu, rafrænum skilríkjum eða auðkennisappi

Upphleðsla greiðslubunka
Þetta er leiðin til að skrá bunka í gegnum netbankann.
- Farðu Greiðslubunkar > Innlendir
- Veldu Hlaða upp skrá (efst á síðunni til hægri)
- Eftir upphleðslu skrárinnar, yfirfarðu greiðslur og stilltu grunnupplýsingar, þ.m.t. greiðsludagsetningu.

Mikilvægt:
- Kerfið sannreynir skrána sjálfkrafa.
- Ekki er hægt að breyta einstökum greiðslum eftir upphleðslu.
- Ef þarf, má hætta við og hlaða upp nýrri og leiðréttri skrá.
Yfirferð og lagfæring villna
Eftir að bunka hefur verið hlaðið upp:
- Birtast allar greiðslur í lista.
- Ef villur eru til staðar eru þær skýrt merktar svo þú sérð hvað þarf að laga.
- Á þessu stigi má einnig smella á "Breyta" (hnappur efst til hægri) til að breyta grunnupplýsingum skrár.

Þú getur annaðhvort:
- Haldið áfram aðeins með greiðslur sem ekki eru á villu.
- Hætt við bunkann og hlaðið upp leiðréttri skrá.
Staðfesta og senda bunka til greiðslu
Þegar allt er tilbúið, staðfestu bunkann með sterkri auðkenningu. Staðfestingin á við um allan bunkann og þar með talið allar greiðslur í honum.

Eftir aðgangsheimildum notanda:
- Má hann senda bunkann til greiðslu sjálfur, eða
- Senda hann til samþykktar (undirritunar) hjá öðrum notanda (ekki í boði enn, fylgir samþykktarferli).

Bunkar með greiðslum á villu
Eftir upphleðslu bunka og villupróf birtist listi yfir allar greiðslur í bunkanum. Ef ein eða fleiri greiðslur innihalda villur, birtist tilkynning efst í textaboxi (blár eða rauður).
- Textinn sýnir heildarfjölda innlesinna greiðslna og fjölda greiðslna með villum.
- Villulýsing inniheldur línunúmer þar sem villan kom upp.
- Notandi sér skýrt hvaða greiðslur/línur innihalda villur og getur því leiðrétt þær.
Tilkynningin sýnir einnig tvo valkosti:
- Vinna bunkann eins og hann er – greiðslur með villum verða þá ekki afgreiddar.
- Hætta við bunka - notandinn getur þá leiðrétt skrána og hlaðið henni upp aftur.
Ef notandi velur að hætta við:
- Hann smellir á hnappinn „Ný upphleðsla“
- Þá opnast innsláttargluggi þar sem hægt er að hlaða upp nýrri skrá
- Kerfið keyrir villupróf á nýju skránni
- Sama nálgun er notuð og við innlestur þekktra viðtakenda
Eftir upphleðslu og villupróf:
- Notandi sér lista greiðslna úr nýjustu upphleðslu.
- Allar skráðar stillingar (t.d. nafn bunka ofl.) haldast.
