Stofnun notenda og aðgangsstýring
Að stofna og stýra aðgangi innri og ytri notenda.
Stýring á réttindum notenda
Með því að opna aðgangsstillingar notanda getur aðgangsstjóri veitt, breytt eða afturkallað réttindi til að:
- Framkvæma fjárhagslegar aðgerðir í netbanka fyrir hönd fyrirtækisins, s.s. greiðslur og stofnun krafna.
- Skoða fjárhagsupplýsingar fyrirtækisins, þ.m.t. greiðslur, færslur og önnur yfirlit.
- Skoða reikningsyfirlit, millifæra og greiða út af bankareikningum.
- Skoða kreditkort.
- Skoða verðbréfasöfn og eiga viðskipti með verðbréf. Þessi liður er enn í vinnslu.
Aðgangsstjóri velur hver réttindi fyrir sig og getur eftir þörfum veitt, breytt eða afturkallað aðgang. Þegar öllum breytingum hefur verið lokið er valið „Skoða og staðfesta“ til að yfirfara og staðfesta breytingarnar með sterkri auðkenningu (rafrænum skilríkjum eða auðkennisappi).
Hlutverk aðgangsstjóra
Aðgangsstjóri hefur yfirsýn á alla innri og ytri notendur sem hafa aðgang að fyrirtækinu og getur stýrt aðgangsheimildum þeirra og réttindum. Markmið yfirlitsins er að veita skýra sýn á þá notendur sem hafa aðgang að fyrirtækinu og einfalda umsýslu aðgangsheimilda.
Aðgangsstjóri getur:
- Stofnað nýja innri notendur. Þetta eru notendur á vegum félagsins.
- Veitt ytri notendum aðgang að fyrirtækinu. Þetta eru notendur sem stofnaðir eru á vegum annarra fyrirtækja eða einstaklinga.
- Veitt, breytt eða afturkallað réttindi tengd fjárhagsupplýsingum og fjárhagslegum aðgerðum.
- Stýrt aðgangi notenda að vörum fyrirtækisins, s.s. reikningum og kortum.
- Óvirkjað innri notendur og afturkallað aðgang ytri notenda.
Í netbankanum er hægt að veita aðgang annað hvort sem innri notanda eða ytri notanda. Munurinn felst í því hver á aðganginn og ber ábyrgð á honum.
Yfirlit notenda
Í yfirliti notenda sést hverjir hafa aðgang að fyrirtækinu. Notendum er skipt í tvo flokka: innri notendur og ytri notendur.
- Innri notendur eru starfsmenn og einstaklingar sem starfa í þágu fyrirtækisins. Aðgangsstjóri getur stofnað og veitt þeim aðgang að reikningum, kortum og öðrum þjónustum sem fyrirtækið notar, breytt og óvirkjað aðgang.
- Ytri notendur eru einstaklingar sem fá aðgang að fyrirtækinu. Þetta eru aðilar sem eru stofnaðir af öðrum viðskiptavin en fyrirtækið sjálft, en þurfa aðgang vegna starfa sinna fyrir fyrirtækið.

Óvirkir notendur
Þegar aðgangur innri notanda er óvirkjaður færist hann í hluta óvirkra notenda og er þannig til taks, ef þörf er á að virkja hann síðar. Þessu er öðru vísi farið með ytri notendur, þegar aðgangur slíkra aðila er tekinn af, þá hverfur notandinn úr lista ytri notenda.
Innri notendur
Innri notendur eru þeir aðilar sem hafa netbankaaðgang fyrir tiltekinn lögaðila. Aðgangsheimildirnar tilheyra viðkomandi félagi og eru í umsjón aðgangsstjóra fyrirtækisins sem stendur að stofnun þeirra. Aðgangstjóri getur:
- Stofnað nýja innri notendur.
- Veitt, breytt eða fjarlægt aðgang að vörum og þjónustu.
- Óvirkjað aðgang notenda. (lokað)
Ytri notendur
Hér er um að ræða aðila sem hafa aðgang að netbanka félagsins, í gegnum notendaaðgang sem er annað hvort:
- Fyrirtækjaaðgangur á vegum annars félags (netbanki fyrirtækja).
- Einstaklingsaðgangur á vegum aðilans sjálfs (netbanki einstaklinga).
Þegar fyrirtæki veitir slíkum aðilu netbankaaðgang að vörum og þjónustu sinni, telst viðkomandi vera ytri notandi hjá því fyrirtæki. Aðgangsstjóri getur:
- Veitt ytri notendum aðgang að félaginu.
- Stýrt heimildum þeirra að félaginu, þ.m.t. fjarlægt aðgang þeirra.
Aðgangsstjóri getur hins vegar ekki lokað sjálfum notendaaðganginum, þar sem hann tilheyrir öðru félagi eða einstaklingnum sjálfum. Þegar aðgangur ytri notanda er óvirkjaður hverfur notandinn af lista ytri notenda sem eru með aðgang að félaginu.

Innri eða ytri notendur?
Mælt er með að stofna notendur sem innri notendur í flestum tilvikum, meðal annars fyrir:
- Starfsfólk fyrirtækisins.
- Einstaklinga sem starfa í þágu fyrirtækisins, tímabundið eða til lengri tíma, svo sem bókara, endurskoðendur og aðra þjónustuaðila.
Ytri notendum ætti aðeins að veita aðgang þegar sérstakar aðstæður kalla á það, til dæmis:
- Handhöfum fyrirtækjakreditkorta sem þurfa að hafa aðgang að kortaupplýsingum og/eða skila inn kvittunum í appi, en hafa ekki netbankaaðgang að fyrirtækinu.
- Innheimtu- og þjónustufyrirtækjum sem tengjast fyrirtækinu í gegnum vefþjónustur til að sinna þjónustu fyrir þess hönd.
Helsti munurinn
- Innri notendur fá eigin notendaaðgang sem tilheyrir fyrirtækinu.
- Ytri notendur fá aðgang að fyrirtækinu í gegnum sinn eigin netbankaaðgang.
Stofnun innri notenda
Aðgangsstjóri fer í Stillingar > Aðgangsstýring og velur „Stofna innri notanda“. Ferlið er eftirfarandi:
Stofna innri notanda
- Skrá kennitölu, farsímanúmer og netfang.
- Staðfesta stofnun notanda með sterkri auðkenningu (rafræn skilríki eða auðkennisapp).
Veita aðgangsheimildir
- Fjárhagsupplýsingum og aðgerðum (t.d. greiðsla reikninga, stofnun krafna, greiðsluyfirlit o.fl).
- Aðgangur að bankareikningum, yfirlitsheimild og millifærsluréttindi.
- Kreditkortum (skoðunaraðgangur).
- Verðbréfasöfnum - ekki tilbúið enn sem komið er.
Staðfesta aðgangsheimildir
- Aðeins eina staðfestingu þarf fyrir allar breytingar sem gerðar hafa verið á á aðgangi.
- Til staðfestingar þarf sterka auðkenningu; rafræn skilríki eða auðkennisapp.
Þegar þessum skrefum er lokið er notandinn kominn með aðgang að netbankanum. Hann sést nú í töflu innri notenda.

Tenging ytri notenda
Athugið að til að geta veitt utanaðkomandi aðpila aðgang að netbanka félagsins, verður sami aðili að vera með notendaaðgang að netbanka Íslandsbanka.
Smellið á „Veita ytri notanda aðgang“.
- Skráið kennitölu og notandanafn þess aðila sem á að fá aðgang og smellið á „Leita“.
- Þegar notandinn birtist, veljið viðkomandi notanda og smellið á „Veita ytri notanda aðgang“.
- Staðfestið tenginguna með sterkri auðkenningu, annað hvort með rafrænum skilríkjum eða í auðkennisappi.
Að auðkenningu lokinni birtist notandinn á lista yfir ytri notendur.

Stilling notendaheimilda
Í yfirliti notenda (innri eða ytri) er hægt að veita, breyta eða afturkalla réttindi notenda. Annaðhvort er smellt beint á viðkomandi línu í yfirlitinu eða á þrípunktana (...) hjá viðkomandi notanda. Þar er smellt á „Skoða“ til að opna aðgangsstillingar notandans.
Hér má stilla eftirfarandi aðgang að:
- Fjárhagslegum aðgerðum ss. skráningu greiðslna, stofnun krafna o.m.fl.
- Yfirliti ýmissa fjárhagsupplýsinga og færslna fyrirtækisins.
- Bankareikningum, þar á meðal yfirlits- og millifærsluréttindi.
- Kreditkortum félagsins.
- Verðbréfasöfnum (skoðunar- og viðskiptaréttindi) - þessi liður er í vinnslu enn sem komið er.

Stilling heimilda að yfirlitum og fjárhagslegum aðgerðum

Stilling heimilda að bankareikningum

Staðfesting aðgangsbreytinga
Áður en breytingar eru staðfestar sér aðgangsstjóri allar breytingar sem hann var að gera á aðgangi notandans, hvaða réttindi hafa verið veitt eða afturkölluð. Sía má yfirlitið eftir tegund réttinda, svo sem aðgerðum, reikningum og kortum.
Ein auðkenning nægir til að staðfesta allar breytingar sem gerðar eru á sama notanda í einu. Staðfesting fer fram með öruggri auðkenningaraðferð; rafrænum skilríkjum og Auðkennisappi. Að þessu loknu getur viðkomandi notandi auðkennt sig í netbanka og hafið notkun þeirra liða og aðgerða sem verið var að veita honum heimildir til.
