Erlendar millifærslur

Þessi þjónusta býður viðskiptavinum Íslandsbanka upp á möguleika á að senda fjármuni til útlanda hratt og með lágmarks fyrirhöfn. Netbankinn býður upp á einfalda og þægilega leið til að framkvæma alþjóðlegar greiðslur, stofna og viðhalda erlendum viðtakendum – allt á einum stað.

Yfirlit erlendra viðtakenda

Til að komast inn á upphafssíðu erlendra millifærslna er smellt á liðinn Greiðslur í leiðarkerfi vefsins og þar er valinn liðurinn "Millifærslur". Efst á síðunni sem opnast er hnappur sem ber heitið "Erlendar". Með því að smella á hann þá birtist upphafsmynd erlendra millifærslna. Síðan birtir alla erlenda viðtakendur sem notandinn hefur vistað í gegnum tíðina.

Einfalt er að stofna nýja viðtakendur, breyta og eyða. Til að hefja millifærslu er ýmist smellt á viðtakanda eða valið að "Millifæra" í aðgerðarstikunni lengst til hægri. Til að millifæra á aðila sem notanda hefur aldrei greitt áður til, er valið "Ný millifærsla".

Í lista viðtakenda má leita eftir nafni eða gælunafni viðtakanda, reikningsnúmeri (IBAN), banka viðtakanda eða mynt greiðslu. Þessi mynt er sú sem stungið er upp á við skráningu á millifærslu á viðtakanda, en breyta má henni við skráningu á einstökum millifærslum.

Upp-/niðurhleðsla á viðtakendum

Notendur geta hlaðið til sín og hlaðið upp lista viðtakenda til að einfalda ferlið við að stofna nýja viðtakendur. Til að staðfesta upphleðslu þarf að nota sterka auðkenningaraðferð.

Flýtival

Viðtakendum má bæta við flýtival sem staðsett er efst á upphafssíðu millifærslna. Með því að smella á viðtakanda færist notandi þannig beint í millifærslumyndina með þann aðila valinn. Þannig er einfalt að hefja millifærslur á aðila sem notandi greiðir oft til. Flýtivalið geymir allt að ellefu viðtakendur og einfalt er að bæta við aðilum eða fjarlægja.

Netbankinn býður notendum upp á flýtileið innan úr yfirlitum bankareikninga og á heimaskjá, til að hefja millifærslur þar sem bankareikningurinn sem notandinn var staddur á, skráist sjálfkrafa sem úttektarreikningur í viðkomandi færslu. Þannig lendir notandinn beint inn í skrefi 2 í skráningu á erlendri millifærslu.

Millifæra á nýjan viðtakanda

Þegar notandi hefur aldrei greitt til viðtakanda áður smellir hann á "Ný millifærsla" til að hefja skráningarferlið. Í slíkum tilvikum eru upplýsingar um viðtakandann skráðar samhliða færslunni og í lok hennar er svo hægt að vista viðkomandi. Staðfesta verður slíka aðgerð sérstaklega með sterkri auðkenningaraðferð.

Í skráningarmyndinni eru fyrst skráðar upplýsingar um viðtakandann sjálfan og  svo banka hans. Fyrir viðtakandann er um að ræða liðina: Nafn og eftirnafn, netfang, land og heimilisfang (aðsetur, götunúmer, póstnúmer og borg/bær). Upplýsingar um banka felast í leit sem er mismunandi eftir hvað er skráð sem leitarskilyrði.

  • Reikningsnúmer (IBAN)IBAN er alþjóðlega viðurkennt sniðmát til að auððkenna bankareikninga yfir landamæri. Þetta gerir erlendar greiðslur hraðari og öruggari með því að sameina reikningsnúmer við upplýsingar um land og banka í einn kóða (allt að 34 stafir).Hér dugar að skrá reikningsnúmerið og leita að upplýsingum um viðtökubanka út frá því.
  • SWIFT númerSWIFT (einnig þekkt sem BIC; Bank Identifier Code), er 8-11 stafa auðkenni fyrir fjármálastofnanir um allan heim. Sem dæmi er SWIFT númer Íslandsbanka: GLITISRE.Hér eru upplýsingar um bankann sóttar eftir SWIFT númeri. Notandi skráir svo reikningsnúmer að auki.
  • Bandarískt útibúanúmer:Bandarísk útibúanúmer, oft nefnd ABA, Routing eða Fedwire-númer, eru níu tölustafa kóði sem auðkennir fjármálastofnanir í Bandaríkjunum og Kanada. Þessi númer eru notuð við millifærslur, greiðslur og innborganir og eru sértæk fyrir hvern banka eða útibú.Hér er ABA númerið skráð og leitað að upplýsingum um viðtökubanka út frá því. Leitin skilar upplýsingum um banka og/eða útibú. Notandi skráir svo reikningsnúmer að auki.

Áhættusöm ríki

Ef banki viðtakanda er staðsettur í ríki sem telst áhættusamt skv. mati íslenska fjármálaeftirlitsins, mun bankaleit gefa það til kynna. Notandi verður þá að leggja fram viðbótargögn um greiðsluna – í hvert skipti sem millifærsla er gerð til þessa viðtakanda/banka.

Ef bankinn er staðsettur í ríki sem erlendar millifærslur til eru ekki heimilar, mun kerfið upplýsa notandann um það. Í þeim tilvikum er ekki hægt að ljúka skráningarferlinu.

Skráningarsíða millifærslu

Í þessu skrefi er sjálf millifærslan skráð. Í boði eru eftirfarandi tegundir færslna:

  • Úttekt af ISK reikningi og greitt inn á viðtakanda í erlendri mynt.
  • Úttekt af gjaldeyrisreikningi í erlendri mynt og greitt inn á viðtakanda í sömu mynt.
  • Úttekt af gjaldeyrisreikningi í erlendri mynt og greitt inn á viðtakanda í annarri mynt (þó ekki ISK).

Þegar munar á milli myntar úttektarreiknings og viðtökureiknings, þá fer það eftir hvernig færslan er skráð, hvort í færslunni er gefið gjaldeyristilboð eða ekki. Velji notandi að skrá upphæð millifærslunnar í mynt úttektarreiknings þá er ekki gefið gjaldeyristilboð, enda telst þá vera um einfalda úttekt að ræða. Ef upphæð er hins vegar skráð í mynt viðtökureiknings, þá þarf notandi að samþykkja gjaldeyristilboð. Til þess hefur hann 90 sekúndur.

Það sem sama myntin er á úttektarreikningi og viðtökureikningi, þarf ekki að samþykkja gjaldeyristilboð.

Kostnaður

Almennur kostnaður við erlendar millifærslur er skv. gjaldskrá bankans og er innheimtur í sér færslu. Velja má að skuldfæra annan reikning en þann sem valinn er sem úttektarreikningur í færslunni.

Flýtigreiðslur

Hægt er að panta sk. flýtigreiðslu til að hraða afgreiðslu á millifærslu. Með því að panta flýtigreiðslu berast viðskiptafyrirmælin viðkomandi greiðslustofnun (erlends banka) samdægurs. Til þess að þetta sé mögulegt þarf viðskiptavinur að skrá greiðsluna í netbanka fyrir ákveðinn tíma. Að öðrum kosti bætist við einn dagur við afgreiðslu færslunnar.

Tímamörk flýtigreiðslna eru kl. 14:00 fyrir Evrópu og kl. 17:00 fyrir Bandaríkin og Kanada. Innheimtur er aukalegur kostnaður fyrir flýtigreiðslur skv. gjaldskrá.

Greiðslur utan opnunartíma

Þegar valið er að skrá erlenda millifærslu utan opnunartíma gjaldeyrisborðs Íslandsbanka (kl. 9:15 - 15:30) þá fer færslan á bið. Færslan afgreiðist svo við opnun millibankamarkaða (um kl. 09:25) á næsta virka bankadegi. Afgreiðslan fer þá fram á því gjaldmiðlagengi sem gildir á þeim tíma. Með staðfestingu greiðslufyrirmæla utan opnunartíma, samþykkir viðskiptavinur þannig fyrirfram gjaldmiðlagengi millifærslu.

Áhættusöm ríki

EF viðtökubanki er staðsettur í ríki sem íslensk stjórnvöld telja sem áhættusöm, þá þarf notandinn að skila inn frekari upplýsingum um viðkomandi greiðslu. Svara þarf áreiðanleikakönnun og senda Íslandsbanka ásamt fylgiskjölum (t.a.m. reikningi eða ástæðu greiðslu). Athugið að greiðsla er ekki send viðtakanda fyrr en Íslandsbanki hefur móttekið og yfirfarið gögnin. Þegar fullnægjandi gögn hafa borist er greiðsla afgreidd. Berist gögn eftir kl. 14 innan viðskiptadags er hugsanlegt að greiðslan falli niður.

Ef banki viðtakanda er staðsettur í ríki sem ekki má senda erlendar greiðslur til, þá birtir leitarmyndin niðurstöðu um slíkt. Í þessum tilvikum er ekki hægt að komast lengra í ferlinu.

Staðfesting, sterk auðkenningaraðferð

Til að staðfesta erlendar millifærslur þarf ávallt að nota s.k. "sterkar auðkenningarleiðir". Hér er um að ræða Rafræn skilríki, Auðkennisapp og App Íslandsbanka. Þar sem áhætta við erlendar greiðslur er talin nokkuð meiri en milifærslur innan Íslands, er ekki í boði að sleppa staðfestingu á greiðslum undir tiltekinni upphæð, líkt og gert er með innlendar millifærslur á trausta viðtakendur.

Kvittun

Í lok millifærsluferlisins er notanda birt staðfesting á færslu. Þær upplýsingar sem þar koma fram draga saman þau atriði sem fram koma og hafa verið skráð í færslunni. Af þessum skjá er hægt er að senda kvittun til mótaðila, ýmist með tölvupósti eða sms.

Kvittanasíðan býður upp á að vista viðtakanda í kjölfar fyrstu millifærslu á viðkomandi aðila. Þannig gefst notendum einfaldur kostur á að millifæra síðar á sama aðila. Staðfesta þarf vistun með sterkri auðkenningaraðferð.