Aðgangsstjórar - leiðbeiningar
Nú geta viðskiptavinir sjálfir stofnað aðgangsstjóra í netbanka
Hlutverk aðgangsstjóra
Aðgangsstjóri hefur heimild til að stjórna aðgangi notenda að netbanka og appi fyrirtækisins. Þar sem aðgangsheimildin er víðtæk, krefst umsókn um uppsetningu nýs aðgangsstjóra undirskriftar stjórnar og viðeigandi aðila til að heimildin taki gildi.
Aðgangsstjórar geta að fullu stýrt aðgangi fyrir notendur innan síns eigin fyrirtækis sem aðgangurinn tilheyrir. Auk þess geta þeir veitt eða afturkallað aðgang utanaðkomandi notenda að fyrirtækjum sínum.
Umsókn um stofnun aðgangsstjóra
Eftir innskráningu með rafrænum skilríkjum á oryggi.islandsbanki.is þá birtist listi yfir þau félög sem umsækjandi hefur heimild til að stofna netbanka á.
Hér þarf að velja félagið sem verið er að stofna aðgangsstjóra fyrir. Þá hefst ferlið með því að velja "Umboð" og í hægra horninu uppi er smellt á "Stofna nýjan aðgangsstjóra".

Þá birtist gluggi þar sem kennitala aðgangsstjóra er slegin inn og því næst er smellt á "staðfesta".

Þá kemur upp síða með nafni þess sem á að verða aðgangsstjóri. Hér þarf að fylla út símanúmer og netfang þeirra aðila sem undirrita fyrir hönd félagsins (firmaritun) og þannig gefið aðgangsstjóra heimild. Því næst er valið "Áfram".

Þá birtist kvittun með þessum upplýsingum.

Umsækjandi getur fylgst með stöðu undirritana á aðgangsumsókninni á þessari síðu; oryggi.islandsbanki.is.

Það er einnig til önnur leið ...
Aðgangsstjórar geta líka hafið umsókn um stofnun á öðrum aðgangsstjóra. Þetta er þægilegt að geta gert ef t.a.m. aðgangsstjóri fer í frí eða ætlunin er að bæta við öðrum aðila innan félagsins sem á að sýsla með aðgangsheimildir félagsins, hvort sem er tímabundið eða til framtíðar.
Til að hefja umsóknarferlið fer aðgangsstjóri í töflu notenda á vegum félagsins. Aðeins notendur sem teljast til innri notenda félags geta verið aðgangsstjórar viðkomandi félags. Smellt er á hnappinn "Gera að aðgangsstjóra" og þá færist viðkomandi aðgangsstjóri úr netbanka yfir í Öryggi vefinn. Eftir það er stofnferlið alveg eins og lýst er hér að ofan.
