Kvittanir í bókhaldið

Hér má finna leiðbeiningar fyrir kvittanir í bókhaldið


Hvernig tengi ég kvittun við færslu?

  • Korthafi opnar Íslandsbankaappið.
  • Smellir á "Skoða kort" á það kort sem færslan fór fram á. Þá birtist listi yfir kortafærslur.
  • Smellt er á þá færslu sem ætlað er að bæta kvittun við.
  • Smellt er á hnappinn "Kvittun" og þar velurðu að taka mynd eða hlaða upp mynd.
  • Þar er einnig hægt að flokka færsluna og skrifa athugasemd um færsluna.

Hvernig vinn ég með færslurnar?

  • Skrái mig inn í netbanka.
  • Smelli á „Fjárhagur“ og síðan á „Útgjöld“. Þá birtist listi yfir kort og korthafa sem að eru skráðir á viðkomandi.
  • Á yfirlitssíðunni yfir kortin geturðu hlaðið niður öllum færslum fyrir kortin sem birtast, þú gerir það með því að smella á 'Hlaða niður' takkann sem örin bendir á.

  • Smellt er á það kort sem óskað er eftir að sjá færslur fyrir.
  • Þá birtist listi yfir allar færslur á kortinu sem var valið.
  • Ef smellt er á ákveðna færslu sést viðhengi og aðrar upplýsingar sem korthafi hefur hengt við færsluna í appinu hjá sér, svo sem upplýsingar um tiltekið verkefni eða mynd af kvittun.

Spurt og svar­að