IBAN númer og SWIFT kóði
Hvað er IBAN númer?
Hver reikningur hefur sitt eigið IBAN númer og er það notað við alþjóðlegar greiðslur. Það samanstendur af landskóða, bankanúmeri, höfuðbók, reikningsnúmeri, kennitölu og tveggja stafa tölu sem er reiknuð út eftir ákveðnum leiðum.
Hvað er SWIFT kóði
Swift er alþjóðlegt greiðslukerfi sem notað er til að senda örugg skilaboð milli banka og fjármálastofnana. Það gerir mögulegt að framkvæma millifærslur og aðrar fjármálafærslur milli landa á öruggan og skilvirkan hátt.
SWIFT kóði Íslandsbanka er GLITISRE
IBAN númerið þitt í netbankanum
Til að finna IBAN númerið þitt í netbankanum velurðu reikninginn sem þú vilt finna IBAN númerið fyrir og smellir á upplýsingar. Þá birtast allar helstu upplýsingar um reikninginn þinn.

IBAN númerið þitt í appinu
Til að finna IBAN númerið þitt í appinu velurðu reikninginn sem þú vilt finna IBAN númerið fyrir og smellir síðan á punktana þrjá neðst í vinstra horninu. Þá birtast allar helstu upplýsingar um reikninginn þinn, þar á meðal IBAN númerið.

Hvaða upplýsingar þarf ég að gefa upp til að móttaka erlendar greiðslur?
Þegar aðili fær senda erlenda greiðslu með SWIFT kerfinu þarf sendandi að fá eftirfarandi upplýsingar:
- Beneficiary Account number – IBAN: <IBAN REIKNINGSNÚMER MÓTTAKANDA>
- Beneficiary name: <NAFN VIÐTAKANDA>
- Beneficiary address
- Streetname, Street number: <GÖTUHEITI, GÖTUNÚMER>
- City/Town: <BORG/BÆR>
- Postcode: <Póstnúmer>
- Country: Iceland
- Beneficiary bank information:
- Islandsbanki hf, Kopavogur, Iceland
- SWIFT: GLITISRE