Aukning í fölskum smáskilaboðum (SMS) yfir páska

Við vörum við fölskum smáskilaboðum (SMS) sem hafa verið að berast viðskiptavinum.


Skilaboðin líta út fyrir að vera frá FedEx þar sem gefið er í skyn að ekki sé hægt að afhenda pakka. Skilaboðin leiða fólk á sviksamlega innskráningarsíðu þar sem fólk er beðið um að skrá kortaupplýsingar og símanúmer. Í kjölfarið er reynd innskráning í App/netbanka og/eða úttekt af greiðslukortum.

Ef þú gafst upp greiðslukortið þitt eða heimilaðir innskráningu með rafrænum skilríkjum á hlekknum frystu greiðslukortin þín strax í appinu. Það getur þú gert með því að ýta á „Meira“, velja síðan tannhjólið fyrir „Stillingar“ efst í hægra horninu og þar velurðu „Skrá út úr öllum tækjum“. Hringdu síðan strax í neyðarvakt Íslandsbanka í S: 440-4000.

Lesa meira um netöryggi