Við spáum 25 punkta lækkun stýrivaxta við næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans þann 22. maí næstkomandi. Meginvextir bankans, vextir á 7 daga bundnum innlánum, verða samkvæmt því 4,25% að nýju líkt og þeir voru fram á lokafjórðung síðasta árs. Ekki er útilokað að peningastefnunefndin ákveði að taka stærra vaxtalækkunarskref nú, en við teljum þó líklegra að skrefin verði fleiri og smærri næsta kastið. Það kæmi okkur aftur á móti talsvert á óvart ef vextir yrðu ekki lækkaðir að þessu sinni enda er aðhald peningastefnunnar orðið hærra en efni standa til að mati okkar.
Breyttar horfur kalla á lægri stýrivexti
Við spáum 25 punkta lækkun stýrivaxta við næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans þann 22. maí næstkomandi. Meginvextir bankans, vextir á 7 daga bundnum innlánum, verða samkvæmt því 4,25% að nýju líkt og þeir voru fram á lokafjórðung síðasta árs.
Samantekt
Við spáum 25 punkta vaxtalækkun 22. maí
Stýrivextir verða 4,25%
50 punkta lækkun vaxta ekki útilokuð
Verðbólguhorfur hafa batnað og verðbólguálag á markaði lækkað
Efnahagshorfur til skemmri tíma hafa dökknað talsvert
Frekari lækkun vaxta líkleg á komandi mánuðum