Afhending aldursflokkaverðlauna Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka fór fram í útibúi bankans í Norðurturni Smáralindar fimmtudaginn 28. ágúst síðastliðinn. Veitt voru verðlaun fyrir fyrsta sæti í aldursflokkum karla, kvenna og kvára í maraþoni, hálfmaraþoni og 10 km.
José Sousa frá Portúgal kom fyrstur í mark í heilu maraþoni og Dina Aleksandrova frá Rúsllandi var fyrst í kvennaflokki. Í flokki kvára var Elísa Rúní Þorsteins fyrst í mark. Öll eru þau í aldursflokknum 30-39 ára.
Íslandsbanki óskar öllum hlaupurum til hamingju með frábæran árangur!
Hér má sjá lista yfir sigurvegara eftir aldursflokkum:
