Verðbólguspá: Verðbólga aftur yfir efri vikmörkin

Útlit er fyrir að verðbólga muni mælast enn á ný yfir efri vikmörkum verðbólgumarkmiðs Seðlabankans í september. Helsta ástæða er einskiptisliður sem dettur út úr mælingunni. Ársverðbólga verður áfram rétt yfir vikmörkunum út þetta ár.


Við spáum því að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 0,15% í september frá fyrri mánuði. Gangi spá okkar eftir mun verðbólga aukast úr 3,8% í 4,2% og fara aftur á ný yfir 4% efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans. Helsta ástæða fyrir aukningu ársverðbólgunnar er sú að í september í fyrra lækkaði vísitalan um 0,3% á milli mánaða vegna þess að skólamáltíðir í grunnskólum urðu gjaldfrjálsar. Þessi áhrif fjara út með nýrri septembermælingu. Við teljum að ársverðbólga verði með svipuðu móti næstu mánuði og mun mælast rétt yfir efri vikmörkum Seðlabankans. Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs þann 25. september næstkomandi.

Lækkun flugverðs vegur á móti útsölulokum

Hækkun á flugverði gengur jafnan tilbaka í ágúst og september eftir hækkanir yfir sumartímann. Í ágúst lækkaði flugverð um tæp 12% og við spáum því að flugverð í september muni lækka um 13,3% (-0,36% áhrif á VNV) á milli mánaða. Einnig heldur eldsneytisverð áfram að lækka og samkvæmt mælingu okkar nemur lækkunin á milli mánaða 0,5% (-0,02% áhrif á VNV) í september.

Áhrif útsöluloka á fatnaði og skóm voru mjög hófleg í ágústmánuði eftir grunnar útsölur. Í júlí lækkaði verð á fatnaði og skóm um 4,9% sem er nokkuð minna en oft áður. Í ágúst hækkaði fataverðið þó einungis um 0,7% á milli mánaða sem kom okkur talsvert á óvart. Við spáum því að áhrif útsöluloka verði mest núna í september og liðurinn hækki um 3,7% (0,13% áhrif á VNV). Verðlækkunin frá júlí mun ekki ganga að öllu leyti tilbaka en styrking krónu á líklega sinn þátt í því. Þá hækkar verð á húsgögnum og heimilisbúnaði í september um 1,3% (0,06% áhrif á VNV) samkvæmt spá okkar vegna áhrifa útsöluloka.

Dýrari mjólk hífir matvöruverð upp

Síðustu tvo mánuði hafa matvörur lítið hækkað í verði sem er breyting frá því sem áður var. Áhrif launahækkana fyrr á árinu hafa líklega að mestu komið fram í matvöruverði auk þess sem styrking krónu er farin að segja til sín. Matvörur munu hækka um 0,3% (0,04% áhrif á VNV) samkvæmt spá okkar sem er helst vegna verðhækkunar mjólkur og mjólkurvara. Verðlagsnefnd búvara tilkynnti um hækkun mjólkur og mjólkurafurða sem tók gildi í byrjun september. Aðrar matvörur og drykkir hækka lítið sem ekkert í mánuðinum og samkvæmt dagvöruvísitölu ASÍ lækkar verð á matvörum um 0,06% á milli mánaða.

Húsnæði og aðrir helstu liðir

Húsnæðisliðurinn í heild hækkar í september um 0,4% (0,13% áhrif á VNV) á milli mánaða. Þar spilar reiknaða húsaleigan stóran þátt og hækkar um 0,45% (0,09% áhrif á VNV) samkvæmt spá okkar. Einnig spáum við því að greidd húsaleiga hækki um 0,9% (0,03% áhrif á VNV) sem hefur hækkað á svipuðu róli undanfarna mánuði. Reiknaða húsaleigan hefur hækkað hóflega undanfarna tvo mánuði. Við teljum að sú þróun haldi áfram næstu mánuði þar sem rólegt er á íbúðamarkaði um þessar mundir en þó er ekki hægt að útiloka verðsveiflur í reiknuðu húsaleigunni.

Aðrir helstu liðir sem hækka á milli mánaða eru tómstundir og menning sem hækka um 0,6% (0,07% áhrif á VNV) og aðrar vörur og þjónusta sem hækkar um 0,5% (0,02%). Verð á þjónustu hótela og veitingastaða lækkar um 0,3% (-0,02% áhrif á VNV) á milli mánaða.

Verðbólga um og yfir vikmörkin næstu mánuði

Verðbólga hjaðnaði þvert á spár í ágúst og mælist ársverðbólga nú 3,8%. Þessi jákvæða ágústmæling breytti nærhorfunum nokkuð og spáum við minni ársverðbólgu næstu mánuði en áður. Þrátt fyrir það er útlit fyrir að ársverðbólga muni aukast í september og verða um og yfir 4% efri vikmörkum næstu mánuði. Bráðabirgðaspá okkar fyrir næstu mánuði lítur svona út:

  • Október: 0,3% hækkun VNV (4,2% ársverðbólga) – Árstíðarbundin áhrif fjara út. Flestir liðir leggjast á eitt og hækka smávegis. Ársverðbólga helst óbreytt á milli mánaða.
  • Nóvember: 0,2% hækkun VNV (4,3% ársverðbólga) – Flugfargjöld lækka sem vegur á móti hækkun á öðrum helstu liðum. Ársverðbólga eykst lítillega.
  • Desember: 0,4% hækkun VNV (4,3% ársverðbólga) – Flugfargjöld hækka í kringum hátíðarnar. Aðrir liðir hækka smávegis. Ársverðbólga helst óbreytt á milli mánaða.

12 mánaða takturinn mun því vera á bilinu 4,2-4,3% næstu mánuði samkvæmt spá okkar og vera rétt yfir 4% vikmörkum verðbólgumarkmiðs Seðlabankans. Það er hagfelldari þróun en við spáðum í ágúst en þó talsvert meiri verðbólga en vonir stóðu til fyrr á árinu að yrði á þessum tímapunkti. Ársverðbólga er þrálát við vikmörkin og hefur verið að sveiflast um og yfir 4% frá ársbyrjun.  Greining mun birta langtíma verðbólguspá samhliða þjóðhagsspá síðar í mánuðinum.

Höfundur


Bergþóra Baldursdóttir

Hagfræðingur í Greiningu


Hafa samband

Lagalegur fyrirvari

Skýrsla þessi er tekin saman af Greiningu Íslandsbanka hf. (Íslandsbanki).

Upplýsingar í skýrslu þessari eru upprunnar frá innlendum og erlendum upplýsinga- og fréttaveitum, sem taldar eru áreiðanlegar, ásamt opinberum upplýsingum, eigin úrvinnslu Greiningar og mati á hverjum tíma. Upplýsingarnar hafa ekki verið kannaðar sjálfstætt af Íslandsbanka og ábyrgist bankinn ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra. Skoðanir höfunda geta breyst án fyrirvara og ber Íslandsbanka ekki skylda til að uppfæra, lagfæra eða breyta skýrslunni við breyttar forsendur.

Skýrslan er einungis birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum. Íslandsbanki og starfsmenn bankans bera ekki ábyrgð á viðskiptum sem kunna að vera gerð á grundvelli þeirra upplýsinga sem fram koma í skýrslunni. Þeim aðilum sem hafa hug á viðskiptum er bent á að leita sér sérfræðilegrar ráðleggingar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingarkosti sem í boði eru. Fjárfestingum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta og ber m.a. að hafa í huga áhættu vegna alþjóðlegra fjárfestinga og gengisflökts gjaldmiðla. Fjárfestingamarkmið og fjárhagsstaða fjárfesta er mismunandi. Bent skal á að árangur í fortíð er ekki trygging um árangur í framtíð.

Skýrslur og aðrar upplýsingar sem berast frá Íslandsbanka eru einungis ætlaðar til einkanota. Hvorki má afrita efnið, vitna í það né dreifa því, í heild eða að hluta, án skriflegs leyfis frá Íslandsbanka.

Skýrsla þessi er stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í henni sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem hún fjallar um.

Eftirlitsaðili: Fjármálaeftirlitið (www.fme.is).

BANDARÍKIN

Skýrslu þessari eða afritum hennar má ekki dreifa í Bandaríkjunum eða til viðtakenda sem eru bandarískir ríkisborgarar í andstöðu við takmarkanir sem kveðið er á um í bandarískum lögum. Dreifing skýrslunnar í Bandaríkjunum kynni að teljast brot á þeim lögum.

KANADA

Upplýsingarnar í skýrslu þessari eru ekki ætlaðar til dreifingar eða útbreiðslu með neinum hætti í Kanada og því ber ekki að líta á þær sem fjármálaráðgjöf eða ráðleggingu um fjárfestingar í skilningi kanadískra verðbréfalaga.

ÖNNUR LÖND

Lög og reglugerðir í öðrum löndum kunna einnig að takmarka dreifingu skýrslu þessarar.