Verðbólguspá: Afsláttardagar setja svip sinn á mælinguna

Afsláttardagar og árstíðabundin lækkun flugfargjalda lækka vísitölu neysluverðs í nóvember, en ársverðbólga stendur í stað. Eldsneytisverð hækkar enn þrátt fyrir lækkun heimsmarkaðsverðs. Horfur eru á hraðari hjöðnun verðbólgu eftir áramót.


Við spáum því að vísitala neysluverðs (VNV) lækki um 0,45% í nóvember frá fyrri mánuði. Gangi spáin eftir mun ársverðbólga haldast óbreytt í 5,9%. Spáin er lítillega lægri en bráðabirgðaspá okkar, þar sem eldsneytisverð hækkar minna en við gerðum ráð fyrir. Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs þann 26. nóvember næstkomandi.

Flugfargjöld og afsláttardagar lækka vísitöluna 

Flugfargjöld hafa mest áhrif til lækkunar í nóvemberspánni. Samkvæmt spá okkar lækka þau um 12% á milli mánaða (-0,34% áhrif á VNV). Flugfargjöld lækka jafnan mikið í nóvember þegar lengra líður frá háannatíma ferðaþjónustunnar, og hafa lækkað um 12,4% að meðaltali í mánuðinum síðasta áratuginn. Flugfargjöld lækkuðu þó óvænt í október og gæti lækkunin nú því orðið eitthvað minni en alla jafna, auk þess sem hærra verð á þotueldsneyti vegur á móti. 

Dagur einhleypra, 11. nóvember, lendir í verðsöfnunarviku Hagstofunnar annað árið í röð. Samkvæmt mælingu okkar bjóða fjölmargar verslanir upp á afslætti í kringum daginn og er dæmigerður afsláttur á bilinu 20-25%, svipað og í fyrra. Við spáum því að föt og skór lækki um 2,8% (-0,10% áhrif á VNV) og húsbúnaður og heimilistæki um 2,1% (-0,08% áhrif á VNV). Þá lækka raftæki, leikföng, íþróttavörur og snyrtivörur einnig lítillega. Hluti afsláttanna er þó eingöngu í boði í vefverslunum eða með afsláttarkóðum og óvíst er hvort þeir rati inn í mælingu Hagstofunnar.

Áhrif afsláttardaga eru tímabundin og ganga að mestu til baka í desember. Þegar dagur einhleypra lendir utan verðsöfnunarviku Hagstofunnar, til dæmis þegar hann ber upp á helgi eins og mun gerast árin 2028 og 2029, verða áhrifin á VNV að öllum líkindum minni. Þá getur sterk nóvemberlækkun frá fyrra ári fallið úr tólf mánaða samanburðinum og aukið ársverðbólgu tímabundið. Grunnáhrifin ganga þó til baka að mestu í desember og hafa því líklega lítil áhrif á undirliggjandi verðbólgu.

Eldsneyti hækkar þrátt fyrir lækkun olíuverðs 

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað verulega að undanförnu. Verð á Brent-olíu fór hæst í nærri 118 dali á tunnu í október og var yfir 100 dala markinu nánast allan mánuðinn en fór undir 90 dali í vikunni í fyrsta sinn í tæpa þrjá mánuði, eftir að Bandaríkjaforseti sagði átökunum í Íran nær lokið. Lækkunin hefur þó ekki enn skilað sér á dæluna hérlendis enda skammt um liðið. Samkvæmt verðmælingu okkar hækkar eldsneytisverð um 1,1% á milli mánaða (0,04% áhrif á VNV). Við teljum að öðru óbreyttu að lækkanir komi fram fyrir verðmælingu desembermánaðar og spáum 4% lækkun eldsneytisverðs í desember.

Matvöruverð nánast óbreytt 

Matvöruverð hækkaði um 0,4% í október þrátt fyrir verðfrystingar og verðlækkanir stærstu dagvöruverslana landsins, og hefur hækkað um 3,9% síðustu tólf mánuði. Eins og við fjölluðum um í nýlegri greiningu ná lækkanirnar aðeins til hluta matarkörfunnar og vörur sem vega þungt, einkum kjöt og mjólkurvörur, hafa hækkað. Sterk króna hefur hins vegar skapað svigrúm til verðlækkana á innfluttum matvörum. 

Dagvöruvísitala ASÍ bendir til þess að vörukarfan standi nánast í stað eða lækki lítillega á milli mánaða. Við spáum því að matur og drykkir hækki aðeins um 0,1% í nóvember (0,01% áhrif á VNV) og gerum ráð fyrir svipaðri þróun í desember. Við teljum þó að hluti uppsafnaðs kostnaðar komi fram eftir áramót þegar verðfrystingum lýkur. Þá gæti Verðlagsnefnd búvara tekið ákvörðun um heildsöluverð mjólkur á næstu vikum, en nefndin hefur þegar hækkað það þrisvar á árinu. 

Bílar hækka og svipaður taktur í reiknaðri húsaleigu

Bílaverð hefur lækkað fjóra mánuði í röð en við gerum ráð fyrir að sú þróun snúist við í nóvember. Um mánaðamótin lækkaði rafbílastyrkur úr 500 þús. kr. í 400 þús. kr. og verðþak styrkhæfra bíla lækkaði úr 10 m.kr. í 8 m.kr. Við spáum því að bílar hækki um 0,6% (0,03% áhrif á VNV). Hækkunin er þó minni en ella þar sem sumar bílasölur hafa lækkað verð á nýjum bílum í mánuðinum. 

Reiknuð húsaleiga er á sínum stað. Við spáum að hún hækki um 0,4% á milli mánaða (0,08% áhrif á VNV), í sama takti og í október. Leigumarkaðurinn hefur kólnað og hefur vísitala leiguverðs lækkað tvo mánuði í röð. Það gæti verið vísbending um að hægari taktur sé fram undan í reiknaðri húsaleigu, líkt og sést hefur á leigumarkaði. Liðurinn hefur þó reynst seigari en við væntum og enn ríkir nokkur óvissa um þróunina, en HMS og Hagstofan vinna nú að bættum upplýsingum um leiguverð sem gætu varpað skýrara ljósi á þróunina.

Verðbólguhorfur 

Verðbólga tekur að hjaðna í næsta mánuði og horfur eru á enn hraðari hjöðnun eftir áramót. Bráðabirgðaspá okkar fyrir næstu mánuði er eftirfarandi: 

  • Desember: 0,75% hækkun VNV (5,5% ársverðbólga) – Áhrif afsláttardaga ganga að mestu til baka og flugfargjöld hækka árstíðabundið. Eldsneytisverð lækkar í kjölfar lækkunar á heimsmarkaði. 
  • Janúar: óbreytt VNV (5,1% ársverðbólga) – Krónutölugjöld og gjaldskrár opinberra aðila hækka, auk þess sem kílómetragjald hækkar. Matvöruverð hækkar þegar verðfrystingum lýkur. Útsölur og lækkun flugfargjalda vega á móti. 
  • Febrúar: 0,8% hækkun VNV (5,0% ársverðbólga) – Útsölur ganga að hluta til baka og flugfargjöld hækka. 

Spáin fyrir desember er lægri en í síðustu bráðabirgðaspá okkar, sem skýrist af lækkun eldsneytisverðs. Í janúar gerum við hins vegar ráð fyrir meiri hækkun en áður, einkum vegna hærra matvöruverðs. 

Spáin er bundin töluverðri óvissu. Lækkun olíuverðs undanfarið er jákvæð fyrir verðbólguhorfur, olíuverð hefur þó sveiflast mikið á árinu og staðan við Persaflóa er enn viðkvæm. Þá ríkir einnig talsverð óvissa um krónuna. Sterk króna hefur haldið aftur af verðhækkunum á innfluttum vörum, en veikist hún meira en við gerum ráð fyrir gæti innfluttur verðbólguþrýstingur aukist.

Höfundur


Berg­þóra Bald­urs­dótt­ir

Hagfræðingur í Greiningu


Hafa samband

Lagalegur fyrirvari

Skýrsla þessi er tekin saman af Greiningu Íslandsbanka hf. (Íslandsbanki).

Upplýsingar í skýrslu þessari eru upprunnar frá innlendum og erlendum upplýsinga- og fréttaveitum, sem taldar eru áreiðanlegar, ásamt opinberum upplýsingum, eigin úrvinnslu Greiningar og mati á hverjum tíma. Upplýsingarnar hafa ekki verið kannaðar sjálfstætt af Íslandsbanka og ábyrgist bankinn ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra. Skoðanir höfunda geta breyst án fyrirvara og ber Íslandsbanka ekki skylda til að uppfæra, lagfæra eða breyta skýrslunni við breyttar forsendur.

Skýrslan er einungis birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum. Íslandsbanki og starfsmenn bankans bera ekki ábyrgð á viðskiptum sem kunna að vera gerð á grundvelli þeirra upplýsinga sem fram koma í skýrslunni. Þeim aðilum sem hafa hug á viðskiptum er bent á að leita sér sérfræðilegrar ráðleggingar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingarkosti sem í boði eru. Fjárfestingum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta og ber m.a. að hafa í huga áhættu vegna alþjóðlegra fjárfestinga og gengisflökts gjaldmiðla. Fjárfestingamarkmið og fjárhagsstaða fjárfesta er mismunandi. Bent skal á að árangur í fortíð er ekki trygging um árangur í framtíð.

Skýrslur og aðrar upplýsingar sem berast frá Íslandsbanka eru einungis ætlaðar til einkanota. Hvorki má afrita efnið, vitna í það né dreifa því, í heild eða að hluta, án skriflegs leyfis frá Íslandsbanka.

Skýrsla þessi er stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í henni sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem hún fjallar um.

Eftirlitsaðili: Fjármálaeftirlitið (www.fme.is).

BANDARÍKIN

Skýrslu þessari eða afritum hennar má ekki dreifa í Bandaríkjunum eða til viðtakenda sem eru bandarískir ríkisborgarar í andstöðu við takmarkanir sem kveðið er á um í bandarískum lögum. Dreifing skýrslunnar í Bandaríkjunum kynni að teljast brot á þeim lögum.

KANADA

Upplýsingarnar í skýrslu þessari eru ekki ætlaðar til dreifingar eða útbreiðslu með neinum hætti í Kanada og því ber ekki að líta á þær sem fjármálaráðgjöf eða ráðleggingu um fjárfestingar í skilningi kanadískra verðbréfalaga.

ÖNNUR LÖND

Lög og reglugerðir í öðrum löndum kunna einnig að takmarka dreifingu skýrslu þessarar.