Athugið

Þessi grein er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Verðbólgan í fótbolta er rétt að byrja

Hið neikvæða er að þetta mun að öllum líkindum hafa í för með sér enn meiri ójöfnuð í fjárhagslegum styrk þekktustu liðanna og hinna.


Hvernig gat hann kostað 20 milljarða? Eru þessar upphæðir í fótboltanum ekki komnar út í bölvaða vitleysu? Í kjölfar félagsskipta Philippes Coutinho til Barcelona um helgina hefur mikið verið rætt um óðaverðbólgu í knattspyrnuheiminum og hvort einhver innistæða sé fyrir henni. Ég tel svo vera og ekki bara vegna aukins fjölda ofurríkra eigenda.

Sjónvarpið er ekki það eina

Bráðlega hefjast viðræður um næsta útsendingarrétt frá enska boltanum. Sá samningur sem nú er í gildi var um 70% hærri en sá fyrri og þrefalt dýrari en árin 2010-2013. Fréttir herma að nú muni sjónvarpsstöðvarnar fá samkeppni frá aðilum á borð við Amazon, Google og Facebook og verðið gæti hækkað enn frekar.

Það skiptir samt fleira máli en sjónvarpið og þó ef til vill sé minna rætt um markaðssetningu knattspyrnuliða en leikmannasölur og sjónvarps­útsendingar hefur vöxturinn einnig verið gríðarlegur á þeirri hlið rekstursins. Nýr samningur Barcelona við Nike tekur gildi á næsta tímabili, en hann mun skila liðinu 140 milljónum punda (20 milljörðum króna) á ári. Ný auglýsing á treyjunum bætir 44 milljónum punda (6 milljörðum) við.

Vöxtur millistéttarinnar

Hvert sem litið er virðast upphæðirnar hækka, einkum þó hjá þekktustu félagsliðum Evrópu og í ensku úrvalsdeildinni. Allt er þetta afleiðing sömu þróunar, vaxtar alþjóðlegu millistéttarinnar. Sá vöxtur er vonandi bara rétt að byrja. Raunar spáir bandaríska hugveitan Brookings 30% vexti milli áranna 2016 og 2022, en það er milljarður manna. Reiknað er með að 88% þess vaxtar verði í Asíu, þar sem markaðssetning fótboltans hefur verið á fleygiferð. Vexti millistéttar fylgir að fleiri hafa einhverja aura á milli handanna til að kaupa sér áskrift að áhugamálinu, varning eða horfa á leikinn með félögunum á hverfisbarnum. Meiri neyslu fylgja enn fremur meiri tekjur fyrir stærstu auglýsendur heims, sem eru einmitt Facebook og Google. Áhugi þeirra á að festa þennan spennandi markhóp á miðlum sínum ætti því ekki að koma á óvart.

Hið neikvæða er að þetta mun að öllum líkindum hafa í för með sér enn meiri ójöfnuð í fjárhagslegum styrk þekktustu liðanna og allra hinna. Sjónvarpstekjum er vissulega dreift með merkilega jöfnum hætti í ensku úrvalsdeildinni en á meðan General Motors greiðir Manchester United 53 milljónir punda fyrir auglýsinguna fær Burnley 2,5 milljónir frá Dafabet. Það heldur enginn með Burnley í Asíu.

Kannski var það ekki svo vitlaust þegar breyta átti nafni Hull í Hull City Tigers og merki Cardiff City var breytt í rauðan dreka.

Greinin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.

Höfundur


Björn Berg Gunnarsson

Fræðslustjóri


Senda tölvupóst