Verðbólga yfir viðmiðunarmörkum forsenduákvæðis

Verðbólga í ágúst er sú mesta í tvö ár og mælist langt yfir 4,7% forsenduákvæði kjarasamninga. Áhrif sólmyrkvans á vísitöluna reyndust takmörkuð en reiknuð húsaleiga, útsölulok og hækkun háskólagjalda vógu þungt í mánuðinum. Verðbólga mun haldist á svipuðum slóðum út árið áður en hún tekur að hjaðna hægt og bítandi í byrjun næsta árs.


Vísitala neysluverðs (VNV) hækkaði um 0,20% í ágúst samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. Ársverðbólga eykst úr 5,3% í 5,6% og hefur ekki mælst meiri í tvö ár. Þar með liggur fyrir að ársverðbólga í ágúst er yfir 4,7% viðmiðunarmörkum forsenduákvæði kjarasamninga. Verðbólga miðað við VNV án húsnæðis jókst einnig úr 4,8% í 5,2% sem undirstrikar að verðbólgan á rætur sínar að rekja til fleiri þátta en húsnæðis. 

Mælingin er í nokkuð góðu samræmi við okkar spá. Við gerðum þó ráð fyrir 0,15% hækkun VNV í ágúst en að ársverðbólga myndi mælast 5,6%. Spár greinenda lágu á bilinu 0,10% til 0,30% hækkun vísitölunnar. Helsti munur á spá okkar og mælingu Hagstofunnar var að reiknaða húsaleigan hækkaði meira en við gerðum ráð fyrir en á móti lækkaði flugverð meira en við væntum. Áhrif sólmyrkvans á ágústmælinguna reyndust því minni en við gerðum ráð fyrir. 

Reiknuð húsaleiga hækkar skarpt 

Húsnæði skýrir stærsta hluta hækkunar vísitölunnar í ágúst. Það skýrist einkum af því að reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,9% á milli mánaða (0,18% áhrif á VNV). Þetta er mesta mánaðarhækkun reiknaðrar húsaleigu síðan í október 2025. 

Erfitt hefur reynst að spá fyrir um þróun þessa liðar frá því Hagstofan breytti aðferðafræði sinni sumarið 2024. Á sama tíma hefur fasteignamarkaðurinn kólnað talsvert og íbúðaverð lækkað að raunvirði að undanförnu. Leiguverð hefur hins vegar reynst seigara, sem að einhverju leyti ætti að endurspeglast í þróun reiknaðrar húsaleigu þótt mælingarnar byggi á ólíkum aðferðum. Á síðustu tólf mánuðum hefur leiguverð hækkað um 4,7% (júlí til júlí) en reiknuð húsaleiga um 7,2% (ágúst til ágúst).

Útsölulok og háskólagjöld 

Það sem skýrði næstmest í hækkun vísitölunnar á milli mánaða voru útsölulok sem jafnan hafa áhrif á verðþróun í ágúst. Fatnaður hækkaði í verði um 2,7% (0,09% áhrif á VNV) eftir að hafa lækkað um 4,7% í júlí. Húsgögn og heimilisbúnaður hækkuðu einnig um 1,3% (0,05% áhrif á VNV) eftir 4,1% lækkun í fyrri mánuði. Við gerum ráð fyrir að áhrif útsöluloka muni áfram setja svip á verðþróunina í september. 

Hækkun menntunarliðarins vegur einnig þungt í ágústmælingunni, en liðurinn hækkaði um 8,1% (0,08% áhrif á VNV). Þar vegur þyngst hækkun skráningargjalda í opinberum háskólum úr 75 þúsund krónum í 100 þúsund krónur. 

Það kom okkur nokkuð á óvart á matur og drykkir hækkuðu um 0,4% á milli mánaða (0,06% áhrif á VNV). Það er meiri hækkun en undanfarna mánuði og dreifist hún yfir allskyns matvörur.  

Áhrif sólmyrkvans takmörkuð 

Flutningar höfðu áhrif til lækkunar á vísitölunni í mánuðinum. Flugfargjöld lækkuðu um 9,0% (-0,33% áhrif á VNV) eftir mikla hækkun í mánuðinum á undan. Athyglisvert var að verð á bílum lækkaði einnig um 1,4% (-0,06% áhrif á VNV). Á móti hækkaði eldsneytisverð um 1,5% (0,04% áhrif á VNV). 

Í verðbólguspánni fyrir ágúst veltum við því upp hvort sólmyrkvinn gæti haft áhrif til hækkunar á verðlagi. Sólmyrkvinn átti sér stað 12. ágúst samhliða verðmælingaviku Hagstofunnar og því var ekki útilokað að hann hefði áhrif á suma undirliði vísitölunnar. Við gerðum ráð fyrir lítilsháttar áhrifum en nýjar tölur benda til þess að þau hafi býsna takmörkuð. Flugfargjöld lækkuðu ekki minna en venjulega í ágúst og verð á veitinga- og gistiþjónustu hækkaði einungis um 0,25% milli mánaða (0,01% áhrif á VNV). Flestar spár gerðu hins vegar ráð fyrir meiri hækkun í þeim lið vegna sólmyrkvans. 

Samsetning verðbólgunnar 

Þróun á samsetningu ársverðbólgunnar má sjá á myndinni hér að neðan. Af 5,6% verðbólgu í ágúst skýrir húsnæðisliðurinn áfram stærstan hluta, eða 1,7%, og eykst framlagið á milli mánaða eftir að hafa staðið í stað frá því í apríl. Þar ber þó að hafa í huga að sem fyrr segir er verðbólga án húsnæðis einnig veruleg.   

Opinber þjónusta skýrir næstmest, eða um 1,4%, og eykst líka milli mánaða í kjölfar þess að skráningargjöld í opinbera háskóla hækkuðu. Fram að því hafði liðurinn staðið í stað frá áramótum, þegar kílómetragjald var tekið upp og fært undir opinbera þjónustu. Ferðaþjónusta skýrir 0,7% og önnur þjónusta 0,9%. Tólf mánaða taktur ferðaþjónustunnar helst því lítið breyttur á meðan vísitalan lækkar milli mánaða, enda lækkaði flugverð óvenju skarpt í ágúst í fyrra. 

Innlendar vörur skýra um 0,6 prósentustig af ársverðbólgunni og vörur í blönduðum flokkum um 0,3 prósentustig. Framlag innfluttra vara er hins vegar neikvætt og dregur úr verðbólgu um 0,3 prósentustig. Ein helsta skýringin á því er tilfærsla bensín- og dísilgjalda yfir í kílómetragjald, sem flokkast undir opinbera þjónustu í stað innfluttra vara. 

Forsendur samninganna brostnar 

Ágústmæling Hagstofunnar staðfestir að forsendur Stöðugleikasamninganna standast ekki, þar sem bæði 12 mánaða verðbólga í ágúst og sex mánaða verðbólga á ársgrundvelli mælast yfir viðmiðunarmörkum samninganna. Forsendunefnd mun því koma saman eftir næstu helgi og fara yfir stöðuna. Náist ekki samkomulag um viðbrögð við forsendubrestinum geta samningsaðilar sagt samningunum upp fyrir 8. október og falla þeir þá úr gildi 31. október næstkomandi.

Verðbólguhorfur næstu mánuði 

Verðbólga í ágúst þróaðist í takti við okkar spá og því er bráðabirgðaspá okkar fyrir næstu mánuði óbreytt: 

  • September: 0,2% hækkun VNV (5,7% ársverðbólga) – áhrif tímabundinna aðgerða stjórnvalda renna út og virðisaukaskattur á eldsneyti hækkar. Hækkun komugjalda í heilsugæslu hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti vegur lækkun flugfargjalda. 
  • Október: 0,25% hækkun VNV (5,5% ársverðbólga) – árstíðarbundin áhrif fjara út og flestir liðir leggjast á eitt og hækka lítillega. 
  • Nóvember: -0,4% lækkun VNV (5,6% ársverðbólga) – Dagur einhleypra lendir í verðsöfnunarvikunni. Flugverð lækkar. Þrátt fyrir lækkun VNV í nóvember eykst ársverðbólga lítillega þar sem óvenju hagstæð mæling frá sama mánuði í fyrra fellur út úr tólf mánaða samanburðinum. 

Samkvæmt bráðabirgðaspá okkar mun verðbólga reynast þrálát það sem eftir lifir árs. Þróunin næstu mánuði skýrist að hluta af grunnáhrifum þar sem hagstæðar vísitölumælingar frá síðasta ári detta úr tólf mánaða takti verðbólgunnar. Til hækkunar leggjast jafnframt áhrif af lokum tímabundinnar lækkunar virðisaukaskatts á eldsneyti og hækkun komugjalda í heilsugæslu sem taka gildi í september. Við gerum hins vegar ráð fyrir að ársverðbólga taki að hjaðna á fyrstu mánuðum næsta árs og fari aftur undir 5% snemma árs 2027. 

Höfundar


Berg­þóra Bald­urs­dótt­ir

Hagfræðingur í Greiningu


Hafa samband

Ósk­ar Hrafns­son

Sérfræðingur í Greiningu


Hafa samband