Vísitala neysluverðs (VNV) hækkaði um 0,44% í október samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. Ársverðbólga stendur í stað og mælist áfram 5,9%. Verðbólga miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis hækkar hins vegar úr 5,7% í 5,9% og mælist því nú sú sama hvort sem horft er til VNV með eða án húsnæðis.
Mælingin er alveg í takti við okkar spá, en við spáðum 0,45% hækkun milli mánaða. Spár greiningaraðila voru á bilinu 0,45-0,6%. Það helsta sem hreyfir við vísitölunni að þessu sinni eru hækkanir á eldsneyti, komugjöldum og pakkaferðum. Á móti lækkuðu flugfargjöld og bílar í verði.


