Verðbólga í lægstu gildum í fimm ár

Jákvæð tíðindi bárust frá Hagstofunni í morgun þegar verðbólga hjaðnaði í 3,7% og hefur ekki mælst lægri í fimm ár. Afsláttardagar auk lækkunar flugverðs skýra lækkunina að mestu. Líklega munu áhrifin ganga til baka að einhverju leyti en verðbólguhorfur til skemmri tíma hafa þó skánað.


Vísitala neysluverðs (VNV) lækkaði um 0,5% í nóvember samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. Ársverðbólga hjaðnar úr 4,3% í 3,7%. Ársverðbólga hefur ekki mælst lægri í fimm ár og er nú enn og aftur komin undir 4% vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans. Verðbólga miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis lækkaði einnig á milli mánaða, úr 3,3% í 2,7%, og er hún því nánast komin við markmið.

Það má með sanni segja að mælingin hafi komið á óvart og er hún talsvert undir okkar spá. Við spáðum 0,1% hækkun vísitölunnar en spár voru á bilinu 0,04-0,18% hækkun VNV. Helsti munur á spá okkar og mælingu Hagstofunnar var að flugverð lækkaði talsvert meira en við gerðum ráð fyrir auk þess sem áhrif af afsláttardögum voru talsvert sterkari en við spáðum. Það eru vissulega jákvæð tíðindi en þau áhrif munu að einhverju leyti ganga til baka í næsta mánuði.

Sterk áhrif af afsláttardögum

Flugverð vegur þyngst til lækkunar vísitölunnar í mánuðinum. Flutningar í lofti lækkuðu um 14,4% (-0,33% áhrif á VNV). Við gerðum ráð fyrir talsvert hóflegri lækkunum, m.a. vegna áhrifa af gjaldþroti Play á flugframboð. Íslendingar hafa verið mikið á faraldsfæti og stefnir í metár í ferðalögum til útlanda en það gæti verið að flugfélögin merki minni eftirspurn ferðamanna hingað til lands enda hefur dregið úr komum þeirra það sem af er lokafjórðungi ársins.

Afsláttardagar eru vinsælir nú í nóvembermánuði sem er nokkuð nýtt af nálinni. Í verðmælingaviku Hagstofunnar lenti “dagur einhleypra” sem hafði töluvert meiri áhrif á vísitöluna en við gerðum ráð fyrir og varð til þess að ýmsir helstu liðir VNV lækkuðu á milli mánaða í mælingu Hagstofunnar nú. Þetta eru mestu áhrif sem mælst hafa af slíkum dögum. Helst má nefna:

  • Húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. sem lækkaði um 2,2% (-0,11% áhrif á VNV) - flestir undirliðir lækkuðu á milli mánaða.
  • Föt og skór lækkuðu um 2,7% (-0,1% áhrif á VNV)- skór lækkuðu í verði um 10% og höfðu mest áhrif á þennan lið.
  • Tómstundir og menning lækkaði um 0,4% (-0,05% áhrif á VNV) – þar sem tómstundavörur á borð við sjónvörp, tölvur, ýmsar aðrar tómstundavörur og leikföng lækkuðu í verði.
  • Aðrar vörur og þjónusta lækkaði um 0,4% (-0,02% áhrif á VNV).

Ekki voru það margir liðir sem hækkuðu á milli mánaða að þessu sinni. Helst má nefna reiknuðu húsaleiguna sem hækkaði um 0,5% (0,10% áhrif á VNV). Það er talsvert minni hækkun en síðustu tvo mánuði. Að okkar mati er reiknaða húsaleigan einn stærsti óvissuþáttur í skammtímaspá okkar þar sem erfitt hefur reynst að spá fyrir um hana. Einnig hækkuðu matar- og drykkjarvörur í verði um 0,2% (0,02% áhrif á VNV) sem var í takti við væntingar.

Undirliggjandi verðbólga minnkar

Allar kjarnavísitölur lækka á milli mánaða. Þetta þýðir að undirliggjandi verðbólga, sem mælir verðbólgu án sveiflukenndra liða, er að minnka. Þetta er líklega peningastefnunefnd Seðlabankans talsverður léttir þar sem hún horfir gjarnan til undirliggjandi verðbólgu við mat á verðbólguþrýstingi. Athyglisvert er að árstaktur kjarnavísitölu 4, sem mælir verðbólgu án reiknuðu húsaleigunnar auk nokkurra annarra sveiflukenndra liða, mælist nú 2,5% eða við markmið Seðlabankans.

Tölur morgunsins skammgóður vermir?

Óvanalegt er að sjá flesta liði VNV lækka á milli mánaða eins og raunin er nú. Afsláttardagar í nóvember eru nokkuð nýir af nálinni á Íslandi og hafa áhrifin ekki verið jafn mikil og nú. Jákvætt er að verðbólga hjaðni og mælist í sínum lægstu gildum í fimm ár. Trúlega munu áhrifin af útsöluliðum vera skammgóður vermir því í næsta mánuði munu þeir hækka á ný. Þegar kemur að heildarmyndinni hafa þó verðbólguhorfur til skemmri tíma skánað að okkar mati. Bráðabirgðaspá fyrir næstu mánuði:

  • Desember: 0,6% hækkun VNV (3,9% ársverðbólga) – Flugfarfjöld hækka í kringum hátíðirnar. Liðir sem urðu fyrir áhrifum af afsláttardögum í nóvember hækka.
  • Janúar: 0,1% lækkun VNV (4,1% ársverðbólga) – Gjaldskrárhækkanir og krónutöluhækkanir vega á móti vetrarútsölum og lækkun flugverðs.
  • Febrúar: 0,7% hækkun VNV (3,9% ársverðbólga) – Útsölulok í helstu liðum.

Við hækkum mánaðarspá fyrir desember þegar afslættir í nóvember ganga til baka. Ef bráðabirgðaspá okkar mun ganga eftir mælist ársverðbólga 3,9% í febrúar. Eins og sést mun verðbólga enn vera í kringum efri vikmörkin en samt í lægri gildum en við spáðum áður.

Eins og fyrr segir er stærsti óvissuþáttur í spá okkar reiknaða húsaleigan, sem erfitt hefur reynst að spá fyrir um að undanförnu en einnig er talsverð óvissa með janúarmánuð. Breytingar á vörugjöldum á bifreiðum mun hafa áhrif á verð á bílum auk þess sem mikil óvissa er um hversu mikil áhrif kílómetragjald mun hafa áhrif á vísitöluna en það mun taka gildi um áramótin ef frumvarpið verður samþykkt á Alþingi á komandi vikum.

Höfundur


Bergþóra Baldursdóttir

Hagfræðingur í Greiningu


Hafa samband