Verðbólga hjaðnar hægt

Verðbólga hjaðnar lítillega annan mánuðinn í röð. Óvissa er þó áfram mikil um þróunina næstu mánuði og hvenær innflutt verðbólga lætur á sér kræla á ný. Samkvæmt bráðabirgðaspá okkar mun verðbólga mælast yfir forsenduákvæði kjarasamninga í ágúst.


Vísitala neysluverðs (VNV) hækkaði um 0,07% í maí samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. Ársverðbólga hjaðnar því lítillega frá aprílmánuði, úr 5,2% í 5,1%. Verðbólga miðað við VNV án húsnæðis hjaðnaði einnig, úr 4,8% í 4,6%.

Mælingin er aðeins undir okkar spá. Við spáðum 0,2% hækkun vísitölunnar en spár voru allt frá 0,13 lækkun til 0,3% hækkunar. Helsti munur á okkar spá og mælingu Hagstofunnar skýrist af lækkun í  flokknum húsbúnaður og heimilistæki lækkar nokkuð í verði á milli mánaða auk þess sem flugverð hækkaði minna en við gerðum ráð fyrir.

Lækkun eldsneytisverðs vegur þyngra en hækkun flugfargjalda

Flokkurinn Flutningar hefur verið í brennidepli undanfarið í ljósi mikillar hækkunar á olíuverði í kjölfar átaka við Persaflóa. Í maí lækkaði flokkurinn um 0,8% (-0,13% áhrif á VNV), einkum vegna þess að eldsneytisverð (undirliðurinn orkugjafar og smurolíur) lækkaði um 7% (-0,21% áhrif á VNV).

Á móti komu hækkanir á flugfargjöldum, sem hækkuðu um 2,9% (0,08% áhrif á VNV). Það er þó minni hækkun en við höfðum gert ráð fyrir. Lækkun eldsneytisverðs er í takti við okkar spá og má rekja hana til tímabundinnar lækkunar virðisaukaskatts á eldsneyti. Lækkunin hefði þó að öllum líkindum orðið meiri ef heimsmarkaðsverð á hráolíu og unnu eldsneyti hefði ekki hækkað á sama tíma.

Sá flokkur sem skýrði hækkun vísitölunnar að mestu í mánuðinum var húsnæði. Flokkurinn hækkaði samtals um 0,55% (0,16% áhrif á VNV), en þar vó þyngst hækkun á reiknaðri húsaleigu sem hækkaði um 0,65% (0,13% áhrif á VNV). Þetta er annar mánuðurinn í röð sem reiknuð húsaleiga hækkar með þessum hætti og virðist þróunin vera í takti við vísitölu leiguverðs, sem hefur hækkað nokkuð að undanförnu.

Matur og húsgögn lækka

Það sem kemur helst á óvart í mælingu Hagstofunnar er að matvörur lækka lítillega í verði. Lækkunin nam 0,04% (-0,01% áhrif á VNV) sem er jákvætt , sér í lagi í ljósi þess að verð á matvörum stóð í stað í síðasta mánuði. Verðhækkanir á aðföngum til matvælaframleiðslu erlendis virðast því ekki enn farnar að skila sér inn í innlent verðlag. Einnig lækkaði annar flokkur sem er næmur fyrir verðbreytingum erlendis, húsgögn og heimilisbúnaður, um 1,4% (-0,06% áhrif á VNV).

Verðbólguhorfur næstu mánuði

  • júní: 0,6% hækkun VNV (4,8% ársverðbólga) – Eldsneytisverð hækkar, þó í minna mæli en fyrr í vor. Flugfargjöld, veitingahús og gistiþjónusta hækka vegna árstíðarsveiflu.
  • júlí: 0,2% hækkun VNV (4,7% ársverðbólga) – Flugverð hækkar vegna árstíðarsveiflu en útsölur draga úr verðhækkunum á öðrum liðum.
  • ágúst: 0,05% hækkun VNV (4,9% ársverðbólga) – Útsölulok vega upp á móti lægra flugverði.

Ef bráðabirgðaspáin okkar gengur eftir mun ársverðbólga mælast 4,9% í ágúst og þar með rétt yfir forsenduákvæði kjarasamninga.

Undirliggjandi verðbólga miðað við kjarnavísitölur jókst lítillega í maí og bendir það til þess að undirliggjandi verðbólguþrýstingur sé eitthvað að aukast. Við gerum ráð fyrir auknum innfluttum verðbólguþrýstingi á næstu mánuðum í ljósi aðstæðna erlendis. Ef innflutt verðbólga reynist minni en við spáum gæti mælingin í ágúst verið undir forsenduákvæðinu. Umfang hækkunarinnar og hversu lengi hún varir ræðst að verulegu leyti af framvindu átaka við Persaflóa en ljóst er að áhrifin verða meiri á næstunni.

Höfundur


Bergþóra Baldursdóttir

Hagfræðingur í Greiningu


Hafa samband