Vellíðan er mest hjá þeim sem hlaupa til góðs

Niðurstöður nýrrar rannsóknar sýna að þátttaka í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka eykur vellíðan þátttakenda, sérstaklega þegar hlaupið er fyrir gott málefni.


Rannsókn Þórdísar Gísladóttur, prófessors í íþrótta- og heilsufræðum við Háskóla Íslands, ásamt Bang An og Mikihiro Sato birtist nýlega í tímaritinu European Sport Management Quarterly.

Í rannsókninni voru áhrif þátttöku í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2024 á líðan hlaupara skoðuð. Niðurstöðurnar sýna að Reykjavíkurmaraþonið er ekki aðeins stór íþróttaviðburður, heldur getur þátttakan einnig haft jákvæð áhrif á vellíðan þátttakenda.

Vellíðan mæld fyrir og eftir hlaup

Rannsakendur fylgdust með hlaupurum bæði fyrir og eftir hlaupið og mældu ólíka þætti vellíðunar: jákvæðar tilfinningar, áhuga og þátttöku, félagsleg tengsl, tilgang og merkingu, afrek og lífsánægju.

Niðurstöður sýndu að jákvæðar tilfinningar og tilfinning fyrir árangri jukust hjá öllum hlaupurum – óháð því hvort þeir hlupu 3 km, 10 km, hálfmaraþon eða heilt maraþon. Að komast í mark og ná markmiði sínu virðist þannig hafa jákvæð áhrif á ánægju hlauparanna.

Enn jákvæðari áhrif hjá þeim sem hlupu fyrir góðgerðarmál

Áhrifin voru enn meiri hjá þeim sem hlupu til styrktar góðgerðarmálum. Þeir upplifðu meiri áhuga og skuldbindingu í tengslum við þátttökuna og töldu hlaupið í ríkari mæli hafa tilgang og dýpri merkingu. Vitneskjan um að eigin áreynsla styddi jafnframt við mikilvægt málefni bætti þannig nýrri og jákvæðri vídd við upplifun hlauparanna.

Eftir að hafa lokið Reykjavíkurmaraþoninu sögðust þátttakendur vera hamingjusamari og jákvæðari en áður. Spennan á keppnisdegi, stuðningur áhorfenda og ánægjan sem fylgir því að ná árangri virðast öll stuðla að þessum tilfinningum. Bæði afreks- og almenningshlauparar greindu frá aukinni gleði og ánægju eftir þátttöku í viðburðinum.

Ávinningurinn nær út fyrir hreyfinguna sjálfa

Árið 2024 tóku 14.646 einstaklingar þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að ávinningur viðburðarins nái langt út fyrir líkamlega hreyfingu. Sérstaklega geti það að sameina hlaup og góðgerðarstarf skapað innihaldsríkari upplifun og haft jákvæð áhrif bæði á hlauparana sjálfa og samfélagið.

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram laugardaginn 22. ágúst og enn má heita á hlaupara sem hlaupa fyrir hin ýmsu góðgerðarfélög á rmi.is/hlaupastyrkur.