Varúð vegna „Island Surge VPN“

Íslandsbanki tekur undir varnaðarorð lögreglunnar og bendir á einföld skref til að tryggja öryggi þitt


Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur varað við appi sem heitir „Island Surge VPN“. Við hjá Íslandsbanka viljum líka vekja athygli á hættunni.

VPN-öpp frá óþekktum aðilum, utan App Store, geta verið varasöm því þú treystir þeim fyrir netumferðinni þinni. Ef þú setur slíkt app upp í símann eða önnur tæki sem þú notar til að tengjast bankanum geta persónuupplýsingar þínar, innskráningarupplýsingar og fjármál verið í hættu.

Hvað er „Island Surge VPN“?

„Island Surge VPN“ er app fyrir iPhone sem fæst ekki í App Store. Við uppsetningu þarf að breyta VPN-stillingum símans og samþykkja öryggisskírteini sem fylgir appinu.

Þannig geta óviðkomandi komist yfir viðkvæmar upplýsingar úr símanum, meðal annars upplýsingar sem þú notar til að tengjast bankanum.

Ef þú hefur sett appið upp skaltu fylgja þessum skrefum strax, í þessari röð:

  1. Eyddu appinu úr símanum.
  2. Fjarlægðu VPN-stillingarnar og öryggisskírteinið. Farðu í Settings → General → VPN & Device Management. Veldu snið (e. Device VPN eða Profile) og ýttu á Remove Profile. Farðu síðan í Settings → General → About → Certificate Trust Settings. Ef þar er skírteini sem tengist „Surge“ skaltu slökkva á því. Ertu ekki viss um að allt sé farið? Hringdu í okkur í síma 440 4000 eða komdu við í næsta útibúi áður en þú tengist bankanum aftur í Íslandsbankaappinu.
  3. Breyttu innskráningarnúmeri og öryggisnúmeri í Íslandsbankaappinu og netbankanum. Gerðu það ekki fyrr en skrefum 1 og 2 er lokið.
  4. Frystu greiðslukortin þín í Íslandsbankaappinu og pantaðu ný.
  5. Farðu yfir færslur á reikningum og kortum. Athugaðu hvort þar séu færslur sem þú kannast ekki við.
  6. Hringdu strax í síma 440 4000 ef þú sérð færslur sem þú kannast ekki við eða ert í vafa um öryggi upplýsinganna þinna.

Til foreldra og forráðafólks

Það er skiljanlegt að þetta valdi áhyggjum. Ef þú veist ekki hvort appið sé í síma ungmennisins er gott að skoða símann saman:

  • Leitið að „Island Surge VPN“ í símanum og eyðið því ef það er þar.
  • Fylgið skrefi 2 hér að ofan til að fjarlægja stillingar og skírteini.

Viltu aðstoð við að fjarlægja stillingarnar? Starfsfólk okkar í útibúum aðstoðar þig gjarnan. Lögreglan býður líka foreldrum og forráðafólki aðstoð á morgun, fimmtudaginn 15. október, kl. 11–12 á lögreglustöðinni við Hverfisgötu 113 (inngangur nær Snorrabraut).

Nánari leiðbeiningar má finna á Facebook síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu