Eftir að hafa mælst yfir jafnvægisgildinu 100 síðan í október í fyrra lækkaði Væntingavísitala Gallup um 14,1 stig í apríl og mælist nú undir jafnvægisgildinu í 92,8 stigum. Frá því í október hafði verið skarpur stígandi í væntingum heimila og bjartsýni þeirra aukist samhliða hjaðnandi verðbólgu og lækkun vaxta. Þessi mæling í aprílmánuði bendir til mikils viðsnúnings í þeim efnum. Mælinguna má túlka þannig að fleiri svarendur eru svartsýnir varðandi stöðu og horfur í efnahagsmálum en bjartsýnir.
Væntingar heimila lækka hressilega
Væntingavísitala Gallup hríðlækkaði í apríl og mældist undir jafnvægisgildinu í fyrsta sinn í sex mánuði. Mest lækkuðu væntingar neytenda til næstu 6 mánaða og má leiða að því líkum að nýtilkynntir tollar í Bandaríkjunum hafi litað mælinguna talsvert. Þrátt fyrir lægri væntingar heimila og mikla óvissu í alþjóðaviðskiptum teljum við að einkaneysla vaxi þó nokkuð á árinu.
Væntingar til efnahagsástandsins eftir sex mánuði hríðlækka
Allar undirvísitölur nema ein lækka á milli mælinga. Sú undirvísitala sem hækkar er mat á núverandi ástandi sem hækkar um 5,5 stig og mælist nú yfir jafnvægisgildinu í 103 stigum. Undirvísitalan hefur ekki mælst hærri síðan í desember 2022. Aftur á móti hríðlækkar undirvísitalan sem mælir mat á ástandinu næstu 6 mánuði um rúmlega 27 stig á milli mælinga og mælist 86 stig. Hún hefur ekki mælst lægri síðan í september í fyrra.
Undirvísitölurnar sem mæla væntingar til atvinnuástands og mat á núverandi efnahagsaðstæðum- og horfum lækka einnig á milli mánaða. Sú fyrrnefnda lækkar um ríflega 8 stig en mælist þó enn yfir jafnvægisgildinu í 104 stigum. Sú síðarnefnda lækkar hressilega á milli mælinga eða næstum um 18 stig og mælist í 70 stigum.
Tollar Trumps lita væntingarnar
Þetta er áhugaverður viðsnúningur á Væntingavísitölunni og flestum undirvísitölum hennar. Telja verður ansi líklegt að tilkynningar um umfangsmikla tolla í Bandaríkjunum hafi sitt að segja um þennan viðsnúning á væntingum almennt og sér í lagi á horfunum næstu 6 mánuði. Það þarf að taka það með inn í myndina að mælingin á Væntingavísitölunni hefst sama dag og stjórnvöld Bandaríkjanna tilkynntu um hækkun tolla og stendur mælingin yfir í viku, þetta eitt og sér gæti hafa litað niðurstöðuna talsvert.
Tvær undirvísitölur mælast þó yfir jafnvægisgildinu, mat á núverandi ástandi og væntingar til atvinnuástandsins. Heimilin virðast meta stöðuna í efnahagslífinu í dag sæmilega en hafa áhyggjur af horfunum í náinni framtíð. Þrátt fyrir lækkun á væntingum til atvinnuástands á milli mánaða mælast þær enn yfir jafnvægisgildinu og virðast heimilin meta stöðuna á vinnumarkaði sæmilega en eru þó ekki jafn bjartsýn og áður. Það rímar ágætlega við stöðuna á vinnumarkaði sem er að verða heilbrigðari eftir mikla spennu og lágt atvinnuleysi síðustu misserin.
Vöxtur einkaneyslu þrátt fyrir óvissu
Væntingar heimila gefa ansi góða vísbendingu um stöðu þeirra og mælist oft talsverð fylgni á milli Væntingavísitölunnar og þróunar einkaneyslu. Þó verður að hafa varann á að túlka einstaka mánaðarmælingu um of, sem að þessu sinni gæti hafa litast talsvert af nýtilkynntum tollum í Bandaríkjunum. Það er þó þekkt að væntingar lækka í mikilli óvissu og nú eru blikur á lofti í alþjóðaviðskiptum. Þá rímar þróunin hérlendis við sambærilegar væntingamælingar erlendis þar sem víða hefur mælst lækkun upp á síðkastið, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Vissulega mun þessi breytta staða í alþjóðaviðskiptum hafa áhrif hingað til lands en við teljum allgóðar líkur á að höggið á íslenskan efnahag verði ekki verulegt. Það verður athyglisvert að fylgjast með væntingum næsta kastið en við teljum nokkuð líklegt að þær muni hækka á nýjan leik á næstu mánuðum.
Þrátt fyrir þessa nýju mælingu um lægri væntingar heimilanna teljum við að einkaneysla muni taki við sér á árinu. Í þjóðhagsspá okkar frá því í janúar spáðum við 2,7% vexti einkaneyslu á þessu ári. Staða heimilanna er mjög sterk og sparnaðarstig þeirra hátt. Kortavelta hefur vaxið að raungildi á árinu auk þess sem við búumst við áframhaldandi kaupmáttarvexti. Þessir þættir benda til aukinnar einkaneyslu næstu misseri. Á hinn bóginn er mikil óvissa til staðar og hægt hefur verulega á fólksfjölgun til landsins.