Íslandsbanki hf. verður með víxlaútboð mánudaginn 17. febrúar 2020, í stað útboðs sem áætlað var 14. febrúar.
Boðinn verður út 12 mánaða flokkurinn ISLA 21 0218.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 17. febrúar en greiðslu- og uppgjörsdagur er 20. febrúar 2020.