Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Útboð á sértryggðum skuldabréfum 26. febrúar

Íslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 26. febrúar 2019.


Boðnir verða út óverðtryggðu flokkarnir ISLA CB 21 og ISLA CB 23 ásamt verðtryggða flokknum ISLA CBI 28.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 7. mars 2019.

Athugið að gegn samþykktum tilboðum í útboðinu verður hægt að greiða með ISLA CB 19.

Íslandsbanki mun þá kaupa ISLA CB 19 á fyrirframákveðnu verði, þ.e. hreina verðinu 100,1927 sem jafngildir ávöxtunarkröfunni 4,85%. Andvirði ISLA CB 19 ásamt áföllnum vöxtum kemur þá sem greiðsla upp í kaup á nýju bréfunum útgefnum 7. mars 2019.

Taka skal fram í tilboði ef ætlunin er að greiða með ISLA CB 19.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 26. Febrúar 2019.

Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.