Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Útboð á sértryggðum skuldabréfum 2. mars

Íslandsbanki hf. verður með lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum miðvikudaginn 2. mars 2022. Boðinn verður út nýr sértryggður flokkur ISB CBF 27.


Íslandsbanki hf. verður með lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum miðvikudaginn 2. mars 2022.

Boðinn verður út nýr sértryggður flokkur ISB CBF 27.

ISB CBF 27 er óverðtryggður skuldabréfaflokkur með mánaðarlegum vaxtaafborgunum á fljótandi 1 mánaðar REIBOR vaxtagrunni og lokagjalddaga höfuðstóls 10. maí 2027. Útboð ISB CBF 27 verður með hollensku fyrirkomulagi þar sem öll skuldabréfin verða seld á sama verði eða hæsta samþykkta álagi ofan á 1 mánaða REIBOR.

Áætlaður uppgjörsdagur viðskipta er 10. mars 2022.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 2. mars 2022.

Nánari upplýsingar:


Profile card

Fjárfestatengsl


Fjárfestatengsl