Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Útboð á sértryggðum skuldabréfum 2. apríl

Íslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 2. apríl 2019.


Boðnir verða út óverðtryggðu flokkarnir ISLA CB 21 og ISLA CB 23 ásamt verðtryggða flokknum ISLA CBI 28.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 11. apríl 2019.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 2. apríl 2019.

Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.