Uppskeruhátíð áheitasöfnunar Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka

Árleg uppskeruhátíð áheitasöfnunar Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka fór fram í höfuðstöðvum Íslandsbanka á dögunum


Uppskeruhátíð áheitasöfnunar Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka fór fram í höfuðstöðvum Íslandsbanka á dögunum. Þar komu saman fulltrúar góðgerðarfélaga, hlauparar og aðrir sem lögðu sitt af mörkum til að fagna frábærum árangri söfnunarinnar árið 2026.

Á hátíðinni voru jafnframt veittar viðurkenningar til þeirra einstaklinga og hópa sem söfnuðu hæstu upphæðunum í ár.

Yfir 300 milljónir króna söfnuðust annað árið í röð

Í ár söfnuðu hlauparar 308 milljónum króna. Heildarupphæð áheita sem hafa safnast í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka frá því áheitasöfnun hófst árið 2006 er nú komin í um 2,5 milljarða.

Sá einstaklingur sem safnaði mestu var Eiður Rafn Gunnarsson, en hann safnaði 5.300.000 krónum fyrir Píeta Samtökin. Næst kom Sigurbjörg Ýr Guðmundsdóttir sem safnaði 3.775.000 krónum fyrir Styrktarfélag Magnúsar Mána. Þriðja sætið hlaut Guðjón Norðfjörð sem safnaði 2.835.745 krónum fyrir ABC Barnahjálp.

Sá hlaupahópur sem safnaði mestu var Til minningar um Sólveigu Huldu en þau söfnuðu 7.670.000 krónum fyrir Hollvinasamtök SAk. Hlaupahópurinn Karfarnir sem hlupu fyrir Ljósið söfnuðu næst mest og að lokum voru það Team Albert sem hlupu fyrir Ljósið sem söfnuðu þriðju hæstu upphæðinni þetta árið.

Yfir 170 góðgerðarfélög hlutu styrk

Í ár var áheitum safnað fyrir yfir 170 góðgerðarfélög. Öll áheit sem bárust fara beint til félaganna, en Íslandsbanki stendur straum af öllum kostnaði við söfnunina. Þau félög sem fengu hæstu upphæðirnar í ár voru:

  • Ljósið - 38.077.599 krónur
  • Börn með krabbamein - 19.935.882 krónur
  • Píeta Samtökin - 16.025.412 krónur

Íslandsbanki þakkar þeim fjölmörgu góðgerðarfélögum, öllum hlaupurum og stuðningsaðilum Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka fyrir þátttöku sína og framlag til áheitasöfnunarinnar í ár.