Fréttabréf aðalhagfræðings

Hægur vöxtur, vaxandi þróttur


Í nýrri þjóðhagsspá Íslandsbanka er búist við svipuðum hagvexti á þessu ári og í fyrra, en að vöxturinn glæðist svo jafnt og þétt á spátímanum. Í ár styðja utanríkisviðskipti við hagvöxtinn þar sem útflutningur vex hraðar en innflutningur. Á sama tíma vex einkaneysla hægar en áður var talið og fjármunamyndun stendur nánast í stað. Á næstu tveimur árum tekur hagvöxtur við sér á ný, studdur af auknum krafti í innlendri eftirspurn, viðsnúningi í íbúðafjárfestingu og fjölþættum útflutningsvexti, ekki síst í hugverkaiðnaði og landeldi. Spáð er 1,2% hagvexti í ár, 1,8% árið 2027 og 2,3% árið 2028.

Atvinnuleysi ílengist fram á næsta ár en minnkar svo samhliða auknum umsvifum í hagkerfinu. Óvissa um efnahagsþróunina er talsverð um þessar mundir vegna bæði innlendra og erlendra áhrifaþátta.

Eftir býsna stöðugt gengi krónu 2023-2024 styrktist krónan lítillega á síðasta ári. Það sem af er þessu ári hefur hún svo sótt enn frekar í sig veðrið. Hefur gengi krónu gagnvart evru ekki verið hærra en í septembermánuði síðan um mitt ár 2022. Gengisspá okkar gerir ráð fyrir hægfara veikingu síðar meir fremur en snarpri leiðréttingu. Það felur í sér að krónan veikist jafnt og þétt og verður að jafnaði 4% veikari í lok spátímans en í ágústmánuði 2026. 

Óbreyttir stýrivextir og vaxtahækkunarferli líklega lokið

Seðlabankinn hélt stýrivöxtum óbreyttum í 8,0% þann 7. október. Peningastefnunefnd bankans virðist nú hallast að biðstöðu fram yfir áramót fremur en frekari hækkunum þótt verðbólga sé þrálát. Samkomulag um að helstu kjarasamningar á almennum markaði haldi næsta árið með tilteknum viðbótum ásamt tengdum aðgerðum stjórnvalda ættu að róa meðlimi nefndarinnar. Óvissa á vinnumarkaði hefur minnkað mikið og verðbólguáhrif af viðbótunum og aðgerðum stjórnvalda ættu ekki að verða umtalsverð.

Framsýn leiðsögn nefndarinnar í október sló fremur mjúkan tón líkt og í ágúst. Framsýna leiðsögnin er að okkar mati all sterk vísbending um að ekki standi til að hækka vexti í nóvember nema þá að verðbólguhorfur versni enn meira og verðbólguvæntingar hækki. Útlit er fyrir óbreytta stýrivexti út veturinn og vaxtalækkunarferli frá maí 2027 fram á mitt ár 2028 sem lýkur með stýrivexti í grennd við 6%. Langtímavextir eru enn háir og hafa þokast upp það sem af er ári. Raunvaxtastig í landinu er því enn allhátt á flestalla mælikvarða.

Verðbólga eykst í 5,9%

Vísitala neysluverðs (VNV) hækkaði um 0,39% í september. Ársverðbólga jókst því úr 5,6% í 5,9% og hefur ekki mælst meiri síðan í ágúst 2024. Eldsneytisverð hækkaði um 16,5% á milli mánaða (0,43% áhrif á VNV) og hafði þar með mest áhrif einstakra liða til hækkunar. Hækkunina má að mestu rekja til þess að tímabundnar aðgerðir stjórnvalda runnu út um mánaðamótin og hækkaði virðisaukaskattur á eldsneyti þá úr 11% í 24%. Flugfargjöld lækkuðu um 10,8% á milli mánaða (-0,36% áhrif á VNV) og höfðu þar með mest áhrif til lækkunar vísitölunnar. 

Útlit er fyrir að verðbólga haldist á svipuðum slóðum út árið en taki að hjaðna á fyrstu mánuðum næsta árs. Tólf mánaða taktur kjarnavísitalna Hagstofunnar hjaðnaði þó lítillega á milli mánaða, sem bendir til þess að undirliggjandi verðbólguþrýstingur sé ekki að aukast. Aukna verðbólgu nú má því að stórum hluta rekja til tímabundinna þátta. Spáð er 5,4% verðbólgu að meðaltali í ár, 4,5% árið 2027 og 3,6% árið 2028. Verðbólga nær þó ekki markmiði Seðlabankans á spátímanum, þótt hún nálgist 3% undir lok árs 2028.

Frá tveggja stafa verðbólgu að 2,5% markmiði 

Þótt verðbólga hafi hjaðnað verulega frá hámarki er enn langt í land að hún nái aftur verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Verðbólgan hefur tekið stakkaskiptum á síðustu árum og er nú að stærstum hluta þjónustudrifin. Af 5,6% verðbólgu í ágúst má rekja um 5 prósentustig til þjónustuliða, sem jafngildir um 89% af heildarverðbólgunni. Þjónustuverðbólgan er á breiðum grunni og á rætur sínar að rekja til húsnæðis, opinberrar þjónustu og annarrar þjónustu. 

Síðasti spölurinn niður að verðbólgumarkmiðinu reynist oft sá erfiðasti. Hagkerfið hefur tekið að hægja á sér, sem meðal annars sést á vaxandi slaka á vinnumarkaði og minni verðhækkunum á fasteignamarkaði. Hins vegar eru verðbólguvæntingar enn talsvert yfir markmiði Seðlabankans og eru líklega eitt helsta áhyggjuefnið um þessar mundir.

Íbúðamarkaður á krossgötum

Framboð íbúða til sölu hefur aukist og samningsstaða kaupenda styrkst samhliða minni umsvifum á fasteignamarkaði. Á síðustu tólf mánuðum hefur íbúðaverð hækkað um 2,3% að nafnvirði en lækkað um 3,2% að raunvirði. Tæplega 6.700 íbúðir voru til sölu á landinu öllu um miðjan september samkvæmt Fjármálastöðugleikariti Seðlabankans, sem er það mesta síðan farið var að taka saman þau gögn í október 2017. Hæg sala og uppsöfnun óseldra íbúða setja þó þrýsting á byggingaraðila og nú sjást skýr merki um samdrátt í uppbyggingu. 

Í nýrri þjóðhagsspá Greiningar spáum við því að íbúðaverð hækki um 1,8% í ár og 2,8% á næsta ári, sem svarar til um 3,4% og 1,6% lækkunar að raunvirði vegna þrálátrar verðbólgu. Á lokaári spátímans, 2028, spáum við hins vegar 7,5% hækkun eða um 3,8% að raunvirði. Mikið framboð ætti þó að halda aftur af verðhækkunum fyrst um sinn, enda bíður fjöldi fullbúinna íbúða kaupenda. Á sama tíma hægir á uppbyggingu og spáum við 6,4% samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár. Þá gæti nýleg þróun í Grindavík haft áhrif á framboð íbúða með ýmsum hætti. Það sem styður við eftirspurn á íbúðamarkaði á næstu misserum er sterk fjárhagsstaða heimilanna.

Kortavelta dregst saman bæði heima og erlendis

Landsmenn straujuðu greiðslukort sín fyrir 142 ma.kr. í ágúst. Kortavelta jókst um 3,5% í krónum talið miðað við sama mánuð í fyrra en að teknu tilliti til verðlags- og gengisbreytinga dróst hún saman um 2,0%. Kortavelta heimila innanlands dróst saman um 2,6% að raunvirði milli ára og hefur nú minnkað í sex af fyrstu átta mánuðum ársins. Velta þeirra erlendis dróst lítillega saman eða um 0,1%, sem er í fyrsta sinn frá því í apríl 2024 sem hún gefur eftir milli ára. 

Einkaneysla jókst um 0,8% að raunvirði á öðrum ársfjórðungi samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar eftir 1,7% vöxt á þeim fyrsta. Þróun kortaveltunnar bendir til þess að enn hafi hægt á vextinum það sem af er þriðja ársfjórðungi. Kortaveltan skrapp saman um 0,8% að jafnaði í júlí og ágúst og gæti einkaneysla því staðið í stað eða dregist lítillega saman á fjórðungnum.

Takmörkuð sólmyrkvaáhrif í ferðamannastraumi

Þrátt fyrir einstakt aðdráttarafl sólmyrkvans þetta árið fjölgaði ferðamönnum einungis lítið eitt milli ára í ágúst ef marka má brottfarartölur um Keflavíkurflugvöll (KEF). Brottfarir erlendra farþega um flugvöllinn voru 314 þúsund í mánuðinum og hafa raunar aldrei verið fleiri. Fjölgunin milli ára nam þó einungis 0,4%. Athygli vekur að bandarískum ferðamönnum fjölgaði um ríflega fjórðung á milli ára. Það sem af er ári hefur brottförum erlendra farþega um KEF fækkað um 1% á milli ára. Er það í takti við spá okkar frá því í júníbyrjun um lítilsháttar samdrátt í fjölda ferðamanna þetta árið.

Ferðaþjónusta ber enn höfuð og herðar yfir aðrar þjónustugreinar þegar kemur að útflutningstekjum þjóðarbúsins. Þótt litlar líkur séu á að greinin tapi toppsæti sínu meðal útflutningsgreina hvað tekjur varðar á allra næstu árum munu vaxtarbroddarnir í útflutningi hagkerfisins væntanlega verða í þjónustu gagnavera, öðrum geirum hugverkaiðnaðar á borð við lyfjaframleiðslu sem og í landeldi á laxi.

Væntingavísitala tekur stökk

Væntingavísitala Gallup hækkaði um 18,7 stig á milli mánaða og mældist 75,7 stig í ágúst. Þetta er hæsta gildi hennar síðan í september í fyrra. Til samanburðar náði hún botni í 47,3 stigum í apríl. Vísitalan er áfram talsvert undir 100 stiga jafnvægisgildinu og hefur nú mælst undir því í fjórtán mánuði samfleytt. Nýjasta mælingin markar því ekki endilega þáttaskil en bendir engu að síður til þess að dregið hafi úr þeirri miklu svartsýni sem einkenndi síðustu mánuði. 

Hugsanlegt er að aðdragandi þjóðaratkvæðagreiðslunnar um hvort hefja ætti aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju hafi dregið úr vægi neikvæðra erlendra tíðinda í mati landsmanna á efnahagshorfunum. Mest hækkaði undirvísitalan fyrir atvinnuástandið, úr 53 stigum í 85 stig. Sú hækkun er athyglisverð í ljósi þess að vinnumarkaðurinn hefur kólnað jafnt og þétt undanfarin misseri. Kippurinn í væntingum í ágúst breytir þó ekki heildarmyndinni, enda þarf að fara varlega í að túlka einstaka mánaðarmælingar.

Ytri staða þjóðarbúsins sterk þrátt fyrir mikinn viðskiptahalla

Halli á viðskiptajöfnuði við útlönd var ríflega 120 ma.kr. á öðrum fjórðungi ársins. Það svarar til 9,3% af vergri landsframleiðslu (VLF) og hefur hallinn ekki verið meiri á báða þessa kvarða síðan haustið 2008 ef horft er framhjá reiknuðum vaxtagjöldum föllnu bankanna frá hruni fram að uppgjöri slitabúa þeirra. Hallinn tengist að verulegu leyti fjárfestingum sem ætlað er að skapa útflutningstekjur til framtíðar. Hallatölurnar gefa því um þessar mundir mun dekkri mynd af undirliggjandi stöðu utanríkisviðskipta en gjaldeyrismarkaður og erlenda staðan gefa til kynna.

Staðreyndin er nefnilega sú að erlend staða þjóðarbúsins er býsna góð og hefur raunar aldrei verið betri en um þessar mundir. Hrein erlend staða þjóðarbúsins um mitt þetta ár var samkvæmt tölum Seðlabankans jákvæð um 2.408 ma.kr., eða sem samsvarar tæplega 47% af VLF. Fram á miðjan síðasta áratug hafði hreina staðan ávallt verið neikvæð svo langt aftur sem áreiðanlegar hagtölur ná. Með öðrum orðum var Ísland skuldunautur í samfélagi þjóðanna allt fram að því. Um þessar mundir erum við Íslendingar í þeim skilningi hins vegar lánardrottnar sem nemur nærri hálfri landsframleiðslu. Horfur eru á að verulega dragi úr viðskiptahallanum næstu ár og ástæða til að ætla að erlend staða þjóðarbúsins verði áfram traust.

Jón Bjarki Bents­son

Aðalhagfræðingur


Senda tölvupóst