Fréttabréf aðalhagfræðings

Verðbólgan reyndist þrálát í júlí á sama tíma og flestir hagvísar benda til áframhaldandi kólnunar hagkerfisins.


Verð­bólga eykst lít­il­lega í júlí

Vísitala neysluverðs (VNV) hækkaði um 0,36% í júlí og ársverðbólga eykst lítillega úr 5,2% í 5,3%.​ Mælingin er í takt við spá Greiningar sem gerði ráð fyrir 0,35% hækkun. Flugfargjöld hækkuðu um 15% á milli mánaða (0,48% áhrif á VNV) og höfðu mest áhrif einstakra liða, í takt við árstíðabundna sveiflu háannatímans.​ Eldsneytisverð lækkaði um 3,6% (-0,10% áhrif á VNV) eftir lækkun olíuverðs í kjölfar vopnahlésins í júní, en olíuverð hefur hækkað á ný.​ Sumarútsölur vógu til lækkunar; föt og skór lækkuðu um 4,7% (-0,16% áhrif á VNV) og húsbúnaður um 2,4% (-0,09% áhrif á VNV).​ Reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,6% (0,12% áhrif á VNV) og skýrir stærstan hluta hækkunar húsnæðisliðarins. ​Af 5,3% verðbólgu í júlí skýrir húsnæðisliðurinn 1,6% og opinber þjónusta 1,3%, en innfluttar vörur draga úr verðbólgunni um 0,4% sem endurspeglar meðal annars lækkun olíuverðs á alþjóðamörkuðum að undanförnu og áhrif sumarútsalna á fatnaði og húsbúnaði, en aðstæður erlendis hafa tekið breytingum undanfarið og eru enn óvissar.

Ef bráðabirgðaspá Greiningar gengur eftir mælist ársverðbólga 5,4% í ágúst og verður þar með talsvert yfir 4,7% forsenduákvæði kjarasamninga. Aukningin skýrist að mestu af grunnáhrifum, enda lækkaði vísitalan í ágúst í fyrra.​ Undirliggjandi verðbólga miðað við kjarnavísitölur jókst í mánuðinum, sem bendir til þess að verðbólguþrýstingur sé þrálátur þrátt fyrir kólnandi hagkerfi. Næsta vaxtaákvörðun er 19. ágúst og telur Greining líklegt að Seðlabankinn hækki vexti, enda er verðbólga þrálát og verðbólguvæntingar háar.​

Ferðaþjónustan treður marvaðann​

Erlendum brottförum um Keflavíkurflugvöll fækkaði um nærri 5% milli ára í júní og voru þær alls 223 þúsund samkvæmt Ferðamálastofu.​ Bandaríkjamenn voru fjölmennastir með tæp 35% heildarfjöldans, en þeim fækkaði um fimmtung og hafa ekki verið færri í júní frá 2022.​ Næstir komu Þjóðverjar (rúm 8%), Bretar (6%), Kanadamenn (tæp 6%) og Kínverjar (rúm 5%).​

Ferðaþjónustan virðist troða marvaðann það sem af er ári og fá merki eru um vöxt. Til að mynda var kortavelta erlendra korta nánast óbreytt á fyrri helmingi ársins, gistinóttum útlendinga fjölgaði einungis um hálfa prósentu og fjöldi ferðafólks miðað við talninguna á Keflavíkurflugvelli var hér um bil óbreyttur á fyrri helmingi þessa árs frá sama tímabili í fyrra.

Engin ein skýring er að mati Greiningar á þessari þróun heldur er hér trúlega um að ræða samspil nokkurra þátta: veikari samkeppnisstaða vegna sterkrar krónu og hás verðlags, minna flugframboð eftir brottfall PLAY og aðhaldssamari ferðamenn. Ferðaþjónustan er jafnframt að fullorðnast og eðlilegt er að hægi á vexti; útgjöld og verðmætasköpun á hvern ferðamann verða mikilvægari mælikvarðar en fjöldinn einn. Greining spáir lítilsháttar samdrætti í ár og hægum vexti 2027-2028, en háönnin ætti þó að verða allgóð, ekki síst vegna sólmyrkvans í ágúst. Líkur á lakara ferðamannaári hafa aukist frá birtingu spárinnar.

​Hægari taktur á leigumarkaði​

Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,4% í júní og um 5,7% á síðustu tólf mánuðum samkvæmt HMS. ​Í janúar og maí lækkaði leiguverð lítillega að raunvirði milli ára, sem hafði ekki gerst síðan í maí 2023.​ Leiguverð hækkaði talsvert umfram verðlag og laun árin 2023 og 2024 en hefur hækkað hægar en laun frá miðju ári 2025 og haldist nær verðbólgutakti.​ Leigusamningum í leiguskrá fjölgaði um tæplega 1.250 á fyrri helmingi ársins samanborið við nánast 3.100 á sama tímabili í fyrra.​ Hægari fjölgun skýrist nær alfarið af leigufélögum og af því að fleiri samningar féllu úr gildi en í fyrra.​ Að baki liggur meðal annars hægari fólksfjölgun​.

Vísitala leiguverðs mælir verð í nýjum samningum en reiknuð húsaleiga byggir bæði á nýjum og eldri samningum. Reiknuð húsaleiga hjaðnar því mun hægar, meðal annars þar sem um 45% samninga að baki henni voru verðtryggðir og hækka áfram með VNV.​ Þar verða til hringrásaráhrif þar sem liðin verðbólga hefur áhrif á nýjar verðbólgumælingar, sem er ekki heppilegt að mati Greiningar.​ Síðustu 15 ár hefur íbúðaverð hækkað um 271% en leiguverð um 213%, en leiga sem hlutfall af kaupverði hefur þó farið hækkandi frá miðju ári 2022, samhliða hærri vöxtum og minni kaupgetu. Greining gerir ráð fyrir að leiga hækki lítillega umfram húsnæðisverð fram til 2027 en að þróunin snúist við árið 2028.​

Kortavelta tekur við sér þrátt fyrir svartsýni neytenda​

Heimilin straujuðu greiðslukort sín fyrir tæpa 133 ma.kr. í júní, sem jafngildir 8,6% vexti í krónum talið milli ára. Að teknu tilliti til verðlags- og gengisþróunar nam vöxturinn 3,4% og er það fyrsti raunvöxtur kortaveltunnar frá febrúar. Innlend kortavelta tók við sér með tæplega 2% raunvexti eftir samfelldan samdrátt síðan þá, en velta erlendis jókst um 8% að raunvirði. Ríflega 5% fækkun brottfara Íslendinga um Keflavíkurflugvöll milli ára í júnímánuði virðist ekki hafa endurspeglast í erlendu veltunni, enda vegur vaxandi velta í erlendum netverslunum þar á móti.

Væntingar heimila eru afar dökkar, vinnumarkaðurinn hefur versnað og raunverð íbúða lækkað, en stórkaupaáform halda velli, sem minnir á umræðu erlendis um svokallaðan stemningarsamdrátt: að væntingar mælist á svipuðu stigi og í efnahagssamdrætti þótt hefðbundnir hagvísar bendi ekki til sambærilegrar niðursveiflu. Væntingamælingar virðast því fremur mæla skynjað fjárhagslegt álag en raunverulega getu heimila til neyslu, þótt heimilin kunni um leið að finna fyrir neikvæðum eignaáhrifum og óvissu um tekjuhliðina. Undirliggjandi þróun bendir engu að síður til hægari einkaneysluvaxtar: á öðrum ársfjórðungi óx kortaveltan um 0,3% að raunvirði milli ára og hefur vöxturinn ekki verið hægari síðan á lokafjórðungi 2023. Til samanburðar jókst einkaneysla um 2,2% á fyrsta ársfjórðungi samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Greining spáir tæplega 2% vexti einkaneyslu í ár, en líkur á enn minni vexti hafa heldur aukist.

Heimilin virðast þrátt fyrir allt reiðubúin að ráðast í stærri fjárfestingar​

Væntingavísitala Gallup lækkaði um 5,2 stig milli mánaða og mældist 49,2 stig í júní, á svipuðum slóðum og lægstu gildi faraldursáranna. Vísitalan hefur haldist undir 100 stiga jafnvægisgildinu í heilt ár og allar undirvísitölur lækka milli mánaða. Væntingar til atvinnuástands mælast 52 stig, sem er lægsta gildi frá 2020. Mat á núverandi efnahagsaðstæðum og horfum mælist lægst allra undirvísitalna, eða 32,5 stig. Þar vegur líklega þungt að verðbólga hefur reynst þrálát og að Seðlabankinn hefur hækkað stýrivexti tvisvar á árinu, í mars og maí, í fyrsta sinn í þrjú ár.

Stórkaupavísitalan hefur á hinn bóginn hækkað tvo ársfjórðunga í röð, einkum vegna aukinna áforma um húsnæðis- og bifreiðakaup. Alls telja 6,8% svarenda mjög eða frekar líklegt að þeir kaupi húsnæði á næstu sex mánuðum, hæsta hlutfall frá 2019 utan þriðja ársfjórðungs 2024, og 16% að þeir kaupi bifreið, en færri hyggja á utanlandsferð en áður eða 51% samanborið við 58% á sama tíma í fyrra. Þróunin er ólík því sem sást eftir fjármálahrunið 2008 og í upphafi faraldursins, þegar stórkaupavísitalan tók sambærilega dýfu og væntingavísitalan. Væntingarnar virðast fremur endurspegla mat landsmanna á stöðu efnahagslífsins í heild en eigin fjárhagsstöðu, enda er staða heimilanna áfram sterk, sparnaður mikill og kaupmáttur launa jókst um 3,7% í fyrra, og útlit er fyrir áframhaldandi vöxt hans þótt hægari verði. Greining gerir engu að síður ráð fyrir hóflegri vexti einkaneyslu í ár, enda hefur hagkerfið kólnað og vextir eru enn háir, en að hún taki smám saman við sér á ný þegar lengra er litið.

Jón Bjarki Bents­son

Aðalhagfræðingur


Senda tölvupóst