Þegar kemur að netöryggi er almenn skynsemi besta vörnin – ef það er of gott til að vera satt, þá er það sennilega of gott til að vera satt.
Örugg netverslun
- Ekki láta tímapressu stjórna ákvörðunum þínum.
- Þegar verslanir eru með gjafaleiki á samfélagsmiðlum biðja þau aldrei um kortanúmer eða mynd af greiðslukortum.
- Skoðaðu seljendur vel og lestu umsagnir. Því meira samræmi sem er á milli samfélagsmiðla og vefsíðu fyrirtækisins, því betra.
- Ekki skrá þig inn með rafrænum skilríkjum nema að þú hafir ætlað að skrá þig inn.
- Opnaðu ekki grunsamlega tengla, hlekki eða viðhengi, jafnvel þó þau séu frá þekktum aðilum.
- Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú gefur upp kortanúmer, öryggiskóða eða auðkennisþætti.
- Ef vafi liggur á um hvað þú varst að samþykkja þá getur þú alltaf flett upp notkun rafrænna skilríkja þinna á þínum síðum Auðkennis.
- Við kaup á netinu berst staðfestingargluggi með helstu upplýsingum um færslu. Áður en færsla er staðfest er mikilvægt að fullvissa sig um að upplýsingar sem birtast séu réttar og að söluaðili, fjárhæð og gjaldmiðill sé réttur áður en kaup eru samþykkt með rafrænum skilríkjum.
Hvað átt þú að gera ef þú lendir í svikum?
Ef þú lentir í svikum og gafst upp greiðslukortið þitt og aðrar bankaupplýsingar eða heimilaðir innskráningu með rafrænum skilríkjum þá skaltu gera eftirfarandi:
- Frysta öll greiðslukort í appinu.
- Skrá út öll innskráð tæki í appinu. Velja "Meira" niðri í hægra horninu í appinu og ýta þar á tannhjólið. Þar getur þú valið "Skrá út úr öllum tækjum".
- Hringja strax í 440-4000, neyðarþjónustu Íslandsbanka sem er opin allan sólarhringinn fyrir neyðartilfelli.
Nánari upplýsingar má finna á netöryggissíðu Íslandsbanka.
