Saga Flúðasveppa spannar yfir fjörutíu ár en fyrir um tveimur áratugum festi Georg Ottósson kaup á félaginu. Í upphafi vöruðu margir við því að fara af stað með svepparæktun á Íslandi. Aftur á móti hefur það reynst einstaklega farsæl ákvörðun líkt og Georg lýsir sjálfur.
„Fyrstu vikurnar þegar hann rak þetta hérna að þá þótti sko, var allt í lagi að selja fimmhundruð kíló á viku, nú erum við óánægð, nema við náum ellefu tonnum á viku í ræktuninni“.
Flúðasveppir rækta fleira en sveppi. Í næsta húsi við svepparæktunina eru ræktaðar paprikur en Íslandsbanki kom að fjármögnun framkvæmda við húsið fyrir nokkrum árum.
„Ég sagði ég vil borga þetta á þremur árum þetta lán, og ég gerði það að sjálfsögðu. Ég sagði bara, húsið borgar sig á þremur árum og þar kom traustið á milli okkar“.
Að mati Georgs eru upplýsingaflæði, skilningur og trúnaður hornsteinar góðrar bankaþjónustu.
Við þökkum Georg fyrir að taka á móti okkur og óskum honum og starfsfólki Flúðasveppa til hamingju með glæsilegt fyrirtæki.
