Athugið

Þessi grein er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Takk mamma!

Séreignarsparnaður er ein okkar dýrmætasta eign við starfslok og ekki er hún síður dýrmæt þegar við kaupum okkar fyrstu íbúð.


Stærsta fjárfesting flestra er húsnæði og getur reynst stórt verkefni að byggja upp nægilegt eigið fé til útborgunar við fyrstu kaup. Þess vegna er mikilvægt að byrja að safna sem allra fyrst.

Þegar ég byrjaði að vinna sem unglingur hafði ég hvorki vit né vilja til þess að leggja til hliðar hlut af því litla sem kom inn á reikninginn. Ég var í menntaskóla og vildi heldur nýta aurinn í að kaupa mér miða á næsta ball eða jafnvel nýjan kjól. Ég er því gríðarlega þakklát fyrir hana mömmu sem hafði vit fyrir mér og passaði að ég byrjaði að greiða í séreignarsparnað um leið og ég var komin með aldur til.

Margir í kringum mig byrjuðu að spara seinna en þau hefðu viljað, einfaldlega því þau vissu ekki að séreignarsparnaður væri til. Það að byrja seinna að spara getur þýtt ár eða jafnvel tvö í viðbót á „Hótel Mömmu“. Myndin hér fyrir neðan sýnir þetta vel. Talsverður munur er á því að byrja að safna 16 ára eða 20 ára. Innborganirnar á þessum fyrstu árum eru einmitt þær sem ávaxtast lengst og getur munað heilmikið um þær.

Að sjálfsögðu dugar ekki til að greiða bara í séreign. Sá tími kemur að færa þarf fórnir og leggja aukalega til hliðar. Ef fólk býr svo vel að fá að vera í foreldrahúsum sér að kostnaðarlausu og fær jafnvel að ganga í ísskápinn eins og það lystir, þá ætti það um leið að geta lagt talsverðan hluta af launum sínum til hliðar. Þetta tekur sinn tíma en hefst allt á endanum. Mér fannst alltaf gott að horfa á þetta þannig að 40 þúsund krónur á mánuði jafngildi hálfri milljón í sparnað á ári.

Það að leggja til hliðar hluta af launum í hverjum mánuði er einnig fínasta æfing fyrir það sem koma skal eftir að fjárfest hefur verið í íbúð. Þá geta verið mikil viðbrigði að þurfa að greiða mánaðarlega af lánum, borga tryggingar og fleiri reikninga.

Þegar sótt er um séreignarsparnað á fólk rétt á því að fá 2% mótframlag frá vinnuveitanda. Líta má á mótframlagið sem 2% launahækkun. Greiða má á bilinu 2-4% af launum í séreign. Talsverður munur er á því hversu mikið hver og einn á við fyrstu kaup eftir því hvort greidd voru tvö eða fjögur prósent. Þetta sést líka vel á myndinni hér fyrir neðan.

Fólk getur byrjað að safna í séreignarsjóð þegar það hefur náð 16 ára aldri. Á þeim aldri getur verið gott að eiga að fólk sem passar upp á að horft sé fram í tímann og hvetur til skynsemi í fjármálum. Þeir sem byrja snemma að safna í séreignarsjóð verða þakklátir fyrir það þegar fram í sækir.

Greinin birtist fyrst á Vísi.

Höfundur


Katrín Kristinsdóttir

Sérfræðingur í sjóðastýringu hjá Íslandssjóðum


Senda tölvupóst