Athugið

Þessi grein er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Svona eru jólin

Jólaneyslan var 12% meiri 2007 en 2018


Nú styttist í jólin og spennandi að sjá hvort mamma kyssir jólasveininn að þessu sinni. Jólin eru hátíð samverustunda með fjölskyldu og vinum en desember er einnig stærsti útgjaldamánuður allflestra. Að mörgu er að huga, svo sem matar- og gjafainnkaupum og svo er eins og allt sem trassað hefur verið á árinu þurfi að klára fyrir jól. Ef við nennum.

Við eyðum mestu í desember

Íslendingar eru kaupglaðir um jólin. Um það er engum blöðum að fletta enda sést það svart á hvítu á notkun greiðslukorta. Í fyrra nam kortavelta í desember um 100 milljörðum króna og nam neyslan okkar að meðaltali um 14% meiru í desember en aðra mánuði ársins. Á síðustu tíu árum hefur eyðsla í desember verið á bilinu 11%-21% yfir meðaltali hvers árs. Árið 2008 er það eina svo langt sem gögn ná þar sem kortavelta í desember var ekki með meira móti en hina mánuðina, enda þjóðin í miðju hruni.

12% dýrari jól 2007 en 2018

Við eyðum þó ekki jafn háum fjárhæðum í kringum hátíðirnar og við gerðum á góðærisárunum svokölluðu. Á verðlagi ársins 2018 var veltan nokkru meiri í desembermánuði 2007 en nú eða um 12% meiri en hún var í fyrra. Það er ólíklegt að álíka eyðsla sé í sjónmáli þessi jólin. Þrátt fyrir að hagur heimilanna hafi vænkast umtalsvert eru umhverfismál áberandi í umræðunni þessi dægrin og móðins að endurnýta og forðast ofgnótt.

Kortin mest straujuð yfir sumartímann

Áhugavert er þó að sjá að færslufjöldi, þ.e. hversu oft kortið er straujað, er ekki í beinu samhengi við veltuna. Á síðustu árum hafa kort verið notuð oftast yfir hásumarið. Færslufjöldi korta er um 2% meiri í júlí en í desember. Munurinn er ekki gífurlegur en skýringin gæti verið að fólk sé að kaupa dýrari hluti í desember en noti kortið í ódýrari neyslu yfir sumarið, svo sem veitingar á ferðalögum. 

Nánast undantekningarlaust er minnsta veltan í febrúarmánuði og þar á eftir í janúar. Febrúar er vissulega styttri en almennt gerist um mánuðina en þó verður að telja líklegt að jólin spili einnig þar inn í og að fólk sé enn að jafna sig eftir mikil útgjöld um hátíðarnar. Heimilin haldi því að sér höndum á meðan kortareikningar eru greiddir.

Eðlilega getur verið dýrt að halda jól og sést það vel á kortaveltutölum að fólk eyðir mestu í desember og minnst í janúar og febrúar. Aðalmálið er samt að njóta jólanna með fjölskyldu og vinum án þess að steypa sér í skuldir enda skiptir samveran mestu máli þegar upp er staðið. Og maturinn auðvitað.

Höfundur


Bergþóra Baldursdóttir

Hagfræðingur


Senda tölvupóst