Vísitala neysluverðs (VNV) hækkaði um 0,9% í apríl samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. Ársverðbólga hækkar því úr 3,8% í 4,2%. Verðbólga miðað við VNV án húsnæðis mælist 3,2% og hækkar úr 2,5%. Mæling aprílmánaðar er heilt yfir nokkuð í takt við okkar spá en við spáðum 0,8% hækkun vísitölunnar. Spár greiningaraðila voru á bilinu 0,6% til 0,8% hækkun VNV í mánuðinum. Eins og sést á myndinni hér að neðan var helsti munur á okkar spá og tölum Hagstofunnar reiknuð húsaleiga sem hækkaði meira en við væntum. Aðrir liðir eru í takti við okkar spá.
Stutt hlé á hjöðnun ársverðbólgu
Ársverðbólga jókst í apríl og mælist nú rétt yfir efri vikmörkum verðbólgumarkmiðs Seðlabankans. Það er í fyrsta sinn síðan í júlí sem ársverðbólga eykst á milli mánaða. Flugfargjöld, matvælaverð og reiknuð húsaleiga eiga stærstan þátt í hækkun verðbólgunnar að þessu sinni. Von er að árstaktur verðbólgunnar hjaðni strax aftur í næsta mánuði.
Árviss hækkun flugfargjalda um páska
Flugfargjöld hækka alla jafna í takti við aukna ferðagleði landans þegar páskar ganga í garð. Þetta árið varð lítil breyting í þeim efnum og flugfargjöld hækkuðu um 20,4% (0,4% áhrif á VNV) í takt við okkar spá. Við eigum von á því að hluti hækkunarinnar gangi til baka í maí þegar eftirspurn eftir ferðalögum er minni. Margt bendir til lægri flugfargjalda á næstu mánuðum vegna lækkandi heimsmarkaðsverðs á olíu og minnkandi eftirspurnar eftir ferðalögum til landsins, sér í lagi ef Bandaríkjamenn draga úr ferðalögum sínum hingað til lands vegna óvissu þar í landi.
Annar undirliður ferða og flutninga, eldsneyti, lækkaði um 0,22% í verði (0,02% áhrif á VNV) á milli mánaða í apríl. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur farið lækkandi síðustu vikur og er um þessar mundir í sínum lægstu gildum um allnokkra hríð. Við eigum því von á því að verð á eldsneyti haldi áfram að lækka næstu mánuði.
Hækkun reiknaðrar húsaleigu ekki meiri í tæpt ár
Frá því ný aðferð við útreikning reiknaðrar húsaleigu var tekin í gagnið síðasta sumar hafði mánaðarhækkun hennar ekki verið yfir 1% þar til nú þegar hækkunin nam 1,1% (0,4% áhrif á VNV). Við eigum ekki von á því að liðurinn fari á flug næstu mánuði og væntum þess að hækkunin verði áfram í grennd við 0,5% að jafnaði næstu mánuði.
Þrálátar hækkanir matvælaverðs
Hækkanir matvælaverðs hafa verið þrálátar það sem af er þessu ári. Þar hefur helst verið um að ræða hækkanir á innlendum vörum en ýmis kostnaður við rækt matvæla hefur aukist síðustu misseri. Við eigum von á því að það fari að hægja á þessum innlendu hækkunum næstu misseri en stærsti óvissuþátturinn í þeim efnum er íslensk veðrátta sem er óútreiknanleg og gæti sett strik í reikninginn.
Verðbólga hjaðnar aftur strax í maí
Þrátt fyrir aukningu ársverðbólgunnar í apríl eigum við von á því að 12 mánaða verðbólga muni hjaðna strax í næsta mánuði og bráðabirgðaspá okkar er á þessa leið:
- Maí: 0,2% hækkun VNV (ársverðbólga 3,8%)
- Júní: 0,4% hækkun VNV (ársverðbólga 3,7%)
- Júlí: 0,3% hækkun VNV (ársverðbólga 3,5%)
Ef þessi spá okkar gengur eftir mun ársverðbólga mælast 3,5% í júlí. Hún hefur ekki mælst svo lág síðan í lok árs 2020. Samkvæmt okkar langtímaspá gerum við ráð fyrir að áframhaldandi hjöðnun verðbólgunnar þó hægar en verið hefur. Ekki er ólíklegt að einstaka mánuði munum við sjá árstaktinn hækka líkt og nú í apríl en heilt yfir mun verðbólga hjaðna fram á mitt næsta ár og mælast í kringum 3%. Við teljum þó að erfitt verði að ná verðbólgu niður í markmið Seðlabankans þótt hún verði ansi nálægt því.
Til þess að spá okkar gangi eftir þarf gengi krónu að vera nokkuð stöðugt en krónan hefur styrkst nokkuð það sem af er ári. Einnig þarf launaskrið að vera takmarkað til að langtímaspáin gangi eftir en kjarasamningar til lengri tíma hafa eytt að mestu óvissu í þeim efnum.
Hins vegar er stærsti óvissuþáttur um þessar mundir óvissa um áhrifa tolla hérlendis, í spánni okkar gerum við ekki ráð fyrir slíkum áhrifum en munum bregðast við verðbólguspágerðinni þegar línur skýrast frekar.