Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Spáum verðbólgu yfir markmiði

Við spáum því að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 0,15% í ágúst frá fyrri mánuði. Ef spáin gengur eftir mun 12 mánaða verðbólga mælast 2,8% en hún var 3,0% í júlí. Verðbólgan verður þá annan mánuðinn í röð yfir markmiði Seðlabankans en útlit er fyrir að hún muni reika rétt yfir markmiði Seðlabankans næsta kastið.


Samantekt

  • Spáum 0,15% hækkun VNV í ágúst.

  • Flugfargjöld hækka á milli mánaða.

  • Fleiri útsölur í ágúst halda aftur af verðbólgu.

  • Verðbólgan enn hófleg þrátt fyrir mikla veikingu íslensku krónunnar.

  • Eldsneyti hækkar áfram eftir mikla lækkun fyrr á árinu.

  • Föt og skór vega til lækkunar VNV.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Krónan hefur veikst um 1,3% á síðastliðnum mánuði og hefur hún ekki verið jafn veik gagnvart evru síðan 2013 en þrátt fyrir það helst verðbólgan enn tiltölulega stöðug. Við teljum að gengi krónunnar muni haldast í grennd við núverandi stöðu og búumst því ekki við mikilli aukningu á verðbólgu sökum þess. Seðlabankinn hefur verið líflegur á gjaldeyrismarkaði upp á síðkastið og haldið gengi krónunnar nokkuð stöðugu síðastliðna 5 mánuði. Spá Greiningar er að verðbólgan mælist að meðaltali 2,6% á þessu ári, 2,3% á árinu 2021 og 2,5% árið 2022.

Sumarútsölur vega enn til lækkunar

Í síðasta mánuði voru áhrif af útsölum á VNV töluvert minni en undanfarin ár og reiknum við með að liðurinn föt og skór muni vega til lækkunar VNV í ágúst. Spáum við að liðurinn muni lækka um 3,8% (-0,14% í VNV). Eftirspurn eftir flugferðum hefur aukist lítillega undanfarið eftir að hafa verið í algjöru lágmarki í sumar og vegur hækkun flugfargjalda þyngst til hækkunar í ágústmánuði en flugfargjöld hækkuðu um 1,2% á milli mánaða (0,18% í VNV). Eldsneyti hækkar áfram í verði (1,1%) eftir að hafa lækkað umtalsvert fyrr á árinu (0,03% í VNV).

Útsölur lækka einnig verð húsgagna og heimilisbúnaðar (-0,04% í VNV) en áhrif þeirra virðast hafa dreifst yfir júlí og ágúst. Liðurinn reiknuð húsaleiga hækkar einnig á milli mánaða en lágir vextir í sögulegu samhengi hafa viðhaldið raunvexti íbúðaverðs.

Verðbólgan helst yfir markmiði

Verðbólguhorfur næstu mánaða eru örlítið yfir markmiði Seðlabankans en teljast nokkuð góðar miðað við aðstæður. Við spáum 0,2% hækkun í september og sömuleiðis í október en 0,1% hækkun í nóvember. Gangi spá okkar eftir mun verðbólga mælast nokkuð hófleg og verður 3,0% í september, 2,8% í október og einnig 2,8% í nóvember. Í framhaldi teljum við að verðbólga verði við markmið Seðlabankans bæði árið 2021 og 2022.

Enn ríkir mikil óvissa innan samfélagsins vegna annarrar bylgju COVID-19 og ekki er gott að segja hvað næstu misseri muni hafa í för með sér. Við erum þó nokkuð bjartsýn og gefum okkur þá forsendu í spá okkar að góð tök hafa náðst utan um nýleg hópsmit innanlands. Ef til þess kemur að samgöngur um landamærin verði skert á nýjan leik gæti það leitt til frekari veikingar krónunnar sem aukið gæti verðbólgu.

Höfundur


Tryggvi Snær Guðmundsson

Hagfræðingur í Greiningu


Hafa samband

Lagalegur fyrirvari

Skýrsla þessi er tekin saman af Greiningu Íslandsbanka hf. (Íslandsbanki).

Upplýsingar í skýrslu þessari eru upprunnar frá innlendum og erlendum upplýsinga- og fréttaveitum, sem taldar eru áreiðanlegar, ásamt opinberum upplýsingum, eigin úrvinnslu Greiningar og mati á hverjum tíma. Upplýsingarnar hafa ekki verið kannaðar sjálfstætt af Íslandsbanka og ábyrgist bankinn ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra. Skoðanir höfunda geta breyst án fyrirvara og ber Íslandsbanka ekki skylda til að uppfæra, lagfæra eða breyta skýrslunni við breyttar forsendur.

Skýrslan er einungis birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum. Íslandsbanki og starfsmenn bankans bera ekki ábyrgð á viðskiptum sem kunna að vera gerð á grundvelli þeirra upplýsinga sem fram koma í skýrslunni. Þeim aðilum sem hafa hug á viðskiptum er bent á að leita sér sérfræðilegrar ráðleggingar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingarkosti sem í boði eru. Fjárfestingum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta og ber m.a. að hafa í huga áhættu vegna alþjóðlegra fjárfestinga og gengisflökts gjaldmiðla. Fjárfestingamarkmið og fjárhagsstaða fjárfesta er mismunandi. Bent skal á að árangur í fortíð er ekki trygging um árangur í framtíð.

Skýrslur og aðrar upplýsingar sem berast frá Íslandsbanka eru einungis ætlaðar til einkanota. Hvorki má afrita efnið, vitna í það né dreifa því, í heild eða að hluta, án skriflegs leyfis frá Íslandsbanka.

Skýrsla þessi er stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í henni sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem hún fjallar um.

Eftirlitsaðili: Fjármálaeftirlitið (www.fme.is).

BANDARÍKIN

Skýrslu þessari eða afritum hennar má ekki dreifa í Bandaríkjunum eða til viðtakenda sem eru bandarískir ríkisborgarar í andstöðu við takmarkanir sem kveðið er á um í bandarískum lögum. Dreifing skýrslunnar í Bandaríkjunum kynni að teljast brot á þeim lögum.

KANADA

Upplýsingarnar í skýrslu þessari eru ekki ætlaðar til dreifingar eða útbreiðslu með neinum hætti í Kanada og því ber ekki að líta á þær sem fjármálaráðgjöf eða ráðleggingu um fjárfestingar í skilningi kanadískra verðbréfalaga.

ÖNNUR LÖND

Lög og reglugerðir í öðrum löndum kunna einnig að takmarka dreifingu skýrslu þessarar.