Athugið

Þessi grein er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Snjókorn falla

Ef við gefum okkur að útgjöld vegna jólanna séu hér á landi þau sömu og í Bandaríkjunum má áætla að hver fullorðinn Íslendingur verji um 120 þ. kr. til hátíðarinnar, þar af um 80 þ. kr. í jólagjafir.


Hvernig getur aftur verið kominn föstudagur? Lífið er svo sem notalegt í föstudagslandi, þar sem helgin er alltaf framundan, en það er eins og ég fái það æ oftar á tilfinninguna að vikan hafi fuðrað upp fyrirvaralaust.

Kannski tekur því varla að taka niður seríuna. Rennur árið ekki með sama hætti og vikan þegar við verðum eldri og sífellt er sem jólin séu handan við hornið?

Þrátt fyrir að með nokkurri vissu megi bóka komu jólanna ár hvert virðast jólaútgjöldin vera eins og flensan; koma Íslendingum alltaf jafn mikið á óvart en þeim farnast best sem bólusetja sig.

Jólin geta verið dýr, sem ætti ekki að vera fréttnæmt en er það nú samt. Í desember síðastliðnum renndum við kreditkortum í verslunum fyrir um fjórðungi hærri fjárhæð en aðra mánuði ársins. Stór hluti þjóðarinnar greiðir jólareikninginn seint og síðar meir með heilmiklum kostnaði og óþægindum mánuðina á eftir. Vestanhafs nær til dæmis minnihluti bandarískra kreditkortanotenda að greiða niður jólaskuldirnar á innan við þremur mánuðum. Þetta er bagalegt vandamál en lausnin er einföld. Þó jólahátíðin sé nýliðin byrjum við strax að undirbúa þá næstu.

Ef við gefum okkur að útgjöld vegna jólanna séu hér á landi þau sömu og í Bandaríkjunum má áætla að hver fullorðinn Íslendingur verji um 120 þ. kr. til hátíðarinnar, þar af um 80 þ. kr. í jólagjafir. Hagkvæmasta leiðin til að komast hjá kostnaðarsamri greiðsludreifingu er að sjálfsögðu að draga úr útgjöldunum en þó umræða um slíkt hafi verið nokkuð áberandi að undanförnu jókst jólaneysla okkar samt sem áður í fyrra frá árinu á undan.

Ef veislunni skal haldið til streitu er ekkert annað að gera en að byrja strax að spara fyrir jólunum. Í dag eru ekki nema sléttir 11 mánuðir í aðfangadag. Að leggja fyrir 10.000 kr. á mánuði og eiga fyrir jólunum er betra en að fá hnút í magann og þurfa að greiða tugum prósenta meira seinna meir. Þá getum við líka verið í jólaskapi allan ársins hring, drukkið Malt og Appelsín með öllu og raulað Snjókorn falla í tíma og ótíma. Það hugnast mér alveg ágætlega þó mér verði sennilega gert að flytja út í bílskúr með jólaskapið fyrr en síðar.

Greinin birtist fyrst á Vísi

Ráðgjafar Íslandsbanka geta aðstoðað þig við að stilla upp sparnaðaráætlun. Fylltu út formið hér að neðan til að bóka tíma eða sendu okkur línu á islandsbanki@islandsbanki.is

Bóka tíma

Bókaðu ráðgjöf þegar þér hentar.

Sæki þjónustur…

Höfundur


Björn Berg Gunnarsson

Deildarstjóri Greiningar og fræðslu


Senda tölvupóst